Erlent

29 nemendur brenndir lifandi í Nígeríu

Jóhannes Stefánsson skrifar
Herská samtök íslamskra öfgahópa leika lausum hala um svæðið og veigra sér ekki við að myrða börn.
Herská samtök íslamskra öfgahópa leika lausum hala um svæðið og veigra sér ekki við að myrða börn. AFP
Herskáir íslamistar réðust inn í heimavistarskóla í Potiskum í Nígeríu þar sem þeir myrtu 29 nemendur og einn kennara.

Sumir nemendanna voru brenndir lifandi í árásinni samkvæmt þeim sem lifðu hana af. Foreldrar grétu úr örvæntingu þegar þeir reyndu að bera kennsl á lík þeirra sem brunnu.

Bóndinn Malam Abdullahi fann lík tveggja sona sinna, annar tíu ára sem hafði verið skotinn í bakið þegar hann reyndi að flýja og hinn tólf ára sem var skotinn í brjóstið. „Ég mun taka hina syni mína úr skóla," sagði Abdullahi við AP þegar hann stóð yfir líkunum og grét. Hann sagðist eiga þrjú yngri börn í öðrum skóla í nágrenninu. „Þetta er ekki öruggt," sagði hann. „Það eru byssumenn að ráðast á skólana og það er enginn að vernda nemendurna þrátt fyrir nærveru hermanna."

Árásarmennirnir eru taldir vera úr Boko Haram sértrúarflokknum, en nafnið þýðir „vestræn menntun eru helgispjöll."

Einn þeirra sem lifði árásina af er hinn 15 ára gamli Musa Hassan. „Við vorum sofandi þegar við heyrðum skothvelli. Þegar ég vaknaði var einhver sem miðaði byssu á mig." Hann brá hendinni fyrir sig í sjálfsvörn en við það skaut árásarmaðurinn úr byssunni með þeim afleiðingum að Hassan missti fjóra fingur. „Þeir brenndu öll börnin lifandi," sagði hann.

Hann sagði að fjöldi barna úr skólanum hafi náð að flýja inn í skóginn undan árásarmönnunum og hafa ekki fundist síðan.

Boko Haram og aðrir múslimskir öfgahópar hafa brennt fjölda skóla í norðausturhluta Nígeríu síðasta árið. Þessir hópar hafa í auknum mæli gert óbreytta borgara, heilbrigðisstarfsmenn, kennara og starfsmenn hins opinbera að fórnarlömbum sínum í árásum á svæðinu.

Þetta kemur fram á vef NBC News.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×