Tækniframfarir í flugvélahönnun urðu mörgum til lífs Jóhannes Stefánsson skrifar 6. júlí 2013 23:22 Ljóst er að miklu skipti að farþegarnir komust fljótt frá borði. AP
Tækni við hönnun og byggingu flugvéla hefur stórbatnað seinustu áratugi og sérfræðingar telja að vegna þeirra hafi jafn margir lifað af flugslysið í San Francisco og raun ber vitni. Flugvélar hafa verið styrktar og léttar með tækniframförum sem eru til komnar meðal annars vegna flugslysarannsókna. Á meðan lendingarbúnaður er hannaður til að brotna undan vélinni hefur skrokkur vélarinnar og sæti verið styrkt til að vernda farþegana betur. „Þetta er vegna þess sem við höfum lært af eldri slysum, sem þakka má frábærum flugslysarannsóknum og lærdómi af því sem hefur farið úrskeiðis," segir Kevin Hiatt, framkvæmdastjóri Flugöryggisstofnunarinnar í samtali við USA Today. „Þau lentu mjög harkalega og runnu niður flugbrautina og út af henni þar sem þau snérust. Það var frábær hönnun sem hélt öllu saman í vélinni sem varð til þess að fólk gat síðan farið út úr henni." Boeing 777 er gjarnan álitin örugg vél, allt frá því að hún var fyrst tekin í notkun fyrir um 20 árum síðan. Öryggisnefnd samgöngumála (National Transportation Safety Board, NTSB) sem rannsakar flugslys, hefur skráð 57 mis alvarleg slys þar sem vélin kemur við sögu. Flugvélar eru gjarnan taldar mjög öruggur samgöngumáti. Í 95,7% skráðra tilfella NTSB lifa farþegar af flugslys. Samkvæmt tölum stofnunarinnar létust 2,280 farþegar af þeim 53,487 sem lent hafa í samtals 568 slysum. Rannsakendur við MIT hafa einnig bent á að flugferðir séu einn öruggasti samgöngumátinn, sem slær meira að segja lyftum við í öryggi. Einn mikilvægasti þátturinn í því hversu margir lifðu af slysið í San Francisco mun hvera hversu hratt og örugglega fólk fór frá borði, segir John Hansman, prófessor við MIT. Þar skipti höfuðmáli að fólk eyði ekki tíma í að taka föggur sínar og fari út án þess að taka með sér fartölvur eða annað slíkt. Þetta kemur fram á vef USA Today.
Mest lesið „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Erlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Fleiri fréttir Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Sjá meira