ESB ævareitt vegna meintra njósna á skrifstofum sambandsins Jóhannes Stefánsson skrifar 30. júní 2013 16:29 Schulz segir að reynist ásakanir á hendur bandarískum yfirvöldum réttar muni það hafa mjög afdrifaríkar afleiðingar. AFP/AP
Embættismenn Evrópusambandsins eru ævareiðir vegna frétta um það að þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, hafi komið fyrir njósnabúnaði á skrifstofum sambandsins. Sambandið hefur lýst því yfir að reynist þessar ásakanir réttar muni það hafa í för með sér gríðarlegt bakslag fyrir Bandaríkin. „Ég hef þungar áhyggjur og er í áfalli vegna fregnanna," sagði Martin Schulz, forseti Evrópuþingsins í yfirlýsingu vegna málsins. „Ef þessar ásakanir reynast réttar væri það grafalvarlegt mál sem myndi hafa víðtæk áhrif á samband Evrópu og Bandaríkjanna. Fyrir hönd Evrópuþingsins fer ég fram á að málið verði skýrt og að bandarísk stjórnvöld bregðist hratt við og veiti upplýsingar vegna ásakananna." Dómsmálaráðherra Þýskalands, Sabine Leuthesser-Schnarrenberger sagði „ef ásakanirnar eru sannar væri líkt og í Kalda stríðinu," en hún hefur farið fram á að málið verði skýrt án tafar. Der Spiegel heldur því fram í fréttum sínum að það hafi „að hluta" séð skjöl frá Snowden sem sýni fram á að NSA hafi komið fyrir hlerunarbúnaði á skrifstofum Evrópusambandsins í Washington og New York auk þess sem stofnunin hafi beitt „rafrænum njósnum" á skrifstofubyggingu Evrópusambandsins í Brussel. Ráðgjafi Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, Ben Rhodes, sagði að hann hefði ekki séð umrædd skjöl og að hann „myndi ekki tjá mig um óheimilar upplýsingar um njósnaverkefni. Réttast væri að eftirlitssamfélagið myndi gera það." Nánar er sagt frá málinu á vef CNN.
Mest lesið Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira