Er verið að fylgjast með þér inni í stofu? Það er ekki útilokað 20. júní 2013 22:48 Myndin er úr safni.
Er verið að fylgjast með þér heima í stofu? Rannsókn breska ríkisútvarpsins hefur leitt í ljós að það er ekki ólíklegt.Rannsókn fréttastofu breska ríkisútvarpsins hefur leitt í ljós að tölvuþrjótar eru farnir að brjótast inn í tölvur almennings í því skyni að ná stjórn á vefmyndavél tölvu viðkomandi. Ef þrjótarnir komast yfir myndefni, þar sem notandi tölvunnar er fáklæddur eða nakinn, selja þeir myndirnar á svörtum markaði. Myndirnar eru seldar fyrir nokkur pund og eru viðföngin yfirleitt kölluð þrælar á meðal tölvuþrjótanna. Lögreglan í Bretlandi staðfestir að rannsóknir þeirra hafi leitt í ljós að tölvuþrjótar geti náð stjórn á vefmyndavélum fólks og þannig fylgst með þeim heima í stofu. Til þess að svo verði þarf tölvunotandinn að smella á vírus, sem er oftast í formi tölvupósts. Þannig er viðkomandi beðinn um að smella á hlekk sem á að leiða notandann á heimasíður með myndum af frægu fólki, megrunarráðum eða tónlist svo dæmi séu tekin. Raunin er sú að vírus, sem er kallaður RAT, hleðst niður í tölvuna með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki er langt síðan 36 ára gamall karlmaður var dæmdur fyrir að sýkja yfir tvöhundruð þúsund tölvur með þessum hætti. Sá fékk eins og hálfs árs fangelsi fyrir brot sín. Besta vörnin gegn óboðnum gestum eru vírusvarnir. Þær tölvur sem eru sýktar eiga það nefnilega margar sameiginlegt að vírusvarnir þeirra eru gamlar og úreltar. En hugsanlega er besta ráðið einfaldlega að hylja fyrir myndavélina, sé maður ekki að nota hana. Ekki hafa komið upp sambærileg dæmi á Íslandi eftir því sem best er vitað.
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Erlent Fleiri fréttir Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Sjá meira