Ætlar ekki að senda herþotur á eftir Snowden Boði Logason skrifar 27. júní 2013 13:25 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, á fundi í Senegal í morgun. Mynd/Afp „
Ég er ekki að fara setja herþotur af stað til að góma tuttugu og níu ára gamlan hakkara," sagði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, við blaðamenn í Senegal í dag. Forsetinn er í opinberri heimsókn í landinu næstu daga. Á fundinum var hann spurður út í bandaríska uppljóstrarann Edward Snowden sem lak upplýsingum um stórfelldar njósnir Þjóðaröryggisstofunar Bandaríkjanna um almenning á Netinu. Obama sagðist ekki hafa talað við forseta Kína og Rússlands vegna málsins og undirstrikaði að bandarísk yfirvöld myndu fylgja lagalegum leiðum til að sækja Snowden til saka. Snowden lenti á flugvellinum í Moskvu á sunnudag, eftir að hann kom með áætlunarflugi frá Hong Kong. Vladimír Pútín, forseti Rússlandi, staðfesti svo við blaðamenn í Finnlandi í gær að Snowden væri enn á flugvellinum í Moskvu. Snowden hefur sótt um pólitískt hæli í Ekvador og sagði Ricardo Patínó, utanríkisráðherra landsins, í gærkvöldi að það gæti tekið nokkra mánuði að afgreiða hælisumsókn uppljóstarans. Sagði hann að yfirvöld í Ekvador væru tilbúin að veita Snowden vernd í einu af sendiráðum Ekvadors þar til umsóknin yrði tekin fyrir, en rússnesk yfirvöld segja að hann sé ekki vegabréfsáritun til að komast út af flugvellinum í Moskvu. Snowden fer huldu höfði á flugvellinum í Moskvu og hefur enginn náð tali af honum. Þar dvelur hann ásamt Söru Harrison, starfsmanni WikiLeaks.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Sjá meira