Leigusali óskar eftir rostungi Heimir Már Pétursson skrifar 14. júní 2013 08:49 Maðurinn sem fóðrar þennan vörpulega rostung er ekki umræddur leigusali.
Maður í Brighton í Bretlandi hefur auglýst eftir leigjanda á tveimur herbergjum í íbúð sinni, sem ekki væri í frásögur færandi nema leigusalinn fer fram á að leigjandinn klæðist rostungsbúningi í tvær klukkustundir á dag og hagi sér eins og rostungur. Á móti þarf leigjandinn ekki að borga fyrir leiguna. Í auglýsingu í fríblaðinu Gumtree segir að leigusalinn hafi átt gott og langt líf í Alaska með rostungnum Gregory. Hann hafi aldrei átt eins góðan vin og Gregory og hann sakni hans innilega. Nú hafi hann saumað mjög sannfærandi rostungsbúning sem passi fólki í meðalstærð. Hann fer fram á að í þær tvær klukkustundir sem leigjandinn klæðist rostungsbúningnum verði hann að haga sér eins og rostungur, megi ekki tala en verði að gefa frá sér hljóð eins og rostungar gera. Leigusalinn bendir á að finna megi rostungahljóð á veraldarvefnum. Þá fer leigusalinn fram á að væntanlegur leigjandi grípi fisk með munninum sem hann muni henda til hans af og til. Leigusalinn segist ætla að velja úr umsækjendum og þá er bara spurningin hversu margir vilja búa frítt fyrir það litla viðvik að bregða sér í hlutverk rostungs í litlar tvær klukkustundir á dag, í sumardvalarborginni Brighton í Bretlandi?
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira