Klerkur kosinn forseti Írans Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 16. júní 2013 10:37 Hassan Rouhani er nýr forseti Írans. MYND/AFP
Klerkurinn Hassan Rouhani hlaut rúmlega helming atkvæða í forsetakosningunum í Íran og er því réttkjörinn arftaki Mahmoud Ahmadinejads. Rouhani sagði í yfirlýsingu til írönsku þjóðarinnar að sigur hans væri í raun sigur hófseminnar yfir ofstæki. Kjördagur var á föstudaginn og var kjörsókn rétt rúmlega 70 prósent. Alþjóðlegar eftirlitsaðilar hafa sett fram nokkrar athugasemdir við framkvæmd kosninganna, yfirvöld í Bandaríkjunum hafa engu að síður óskað Rouhani velfarnaðar í embætti ásamt því að lofsyngja vilja Írana til að koma til móts við alþjóðasamfélagið. Rouhani er er 64 ára gamall og sver embættis í byrjun ágúst. Hann þykir hófsamur og viljugur til viðræðna við vestræn ríki um kjarnorkuáætlun Írans. Vald forsetans er þó takmarkað, þó svo að hann sé hæst setti kjörni embættismaður landsins. Hann fer með framkvæmdavald en embætti hans heyrir engu að síður undir klerkastjórnina. Æðsti leiðtogi Íran er Ali Khamenei, æðstiklerkur. Hann hefur lýst yfir stuðningi við Rouhani og hvatt þegna Íran til að styðja við bakið á honum. Kjarnorkuáætlun Íran er mörgum hugleikin, þó svo að þarlend yfirvöld hafi ávallt þvertekið fyrir að þróun kjarnavopna sé tilgangur hennar. Forsætisráðherra Ísrael, Benjamin Netanyahu, biðlaði til alþjóðsamfélagsins til að halda áfram þrýstingi sínum á Íran að stöðva tilraunir með kjarnorku.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Játar innbrot í búin Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira