Real Madrid reiðubúið að greiða Ronaldo 25 milljarða í laun Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. júní 2013 10:45 Nordic Photos / Getty Images
Real Madrid ætlar ekki að missa Cristiano Ronaldo frá sér og er sagt viljugt til að bjóða kappanum himinhá laun til þess. Ronaldo mun hafa átt í viðræðum við Real Madrid um nýjan samning samkvæmt fjölmiðlum ytra en félagið vill semja við hann til næstu fimm ára. Ronaldo fær um tíu milljónir evra, 1,6 milljarða, í árslaun í dag en fengi helmingi meira útborgað samkvæmt nýja samningnum. Stærsti munurinn felst þó í því að spænsk yfirvöld hafa breytt skattalöggjöfinni á þann veg að Ronaldo þyrfti að greiða mun hærri skatt en áður - 52 prósent í stað 23 prósenta. Það þýðir að Real Madrid þyrfti að greiða Ronaldo um 32 milljónir evra (5,1 millarð króna) í árslaun til að hann fengi um fimmtán milljónir útborgaðar. Yfir fimm ára tímabil gerir það 155 milljónir evra - 25 milljarða króna. Um stærsta launsamning yrði að ræða í sögu knattspyrnunnar. Lionel Messi fær þrettán milljónir evra hjá Barcelona og Radamel Falcao fjórtán hjá Monaco. Sá eini sem er á hærri árslaunum er Samuel Eto'o hjá rússneska félaginu Anzhi en þar fær hann 20 milljónir evra árlega. Samningur hans við félagið nær þó aðeins til þriggja ára. Fjölmargir leikmenn hafa verið orðaðir við Real Madrid á undanförnum vikum en ólíklegt er að þeir komi í sumar. Meðal þeirra má nefna Ilkay Gündogan og Robert Lewandowski hjá Dortmund, Sergio Agüero hjá Manchester City og Tottenham-manninn Gareth Bale. Þá vildi félagið einnig fá Falcao sem er farinn til Monaco. Forráðamenn Real Madrid hafa því lagt ofuráherslu á að halda Ronaldo í sínum röðum.
Enski boltinn Mest lesið „Svo hringdi kærastan mín og ég er búinn að vera hér síðan“ Íslenski boltinn Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Körfubolti Mikið tap á rekstri HSÍ: „Verulegar áhyggjur“ Handbolti DeChambeau mun einbeita sér að Youtube ef LIV verður að engu Golf Fór úr fingurlið og menn gátu ekki horft Körfubolti Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Enski boltinn Sjáðu markið sem skaut Arsenal áfram í úrslitaleikinn Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti Gunnlaugur mun aftur keppa á sterkasta áhugamannamóti í heimi Golf Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Besta sumarvinna sögunnar? „Svo hringdi kærastan mín og ég er búinn að vera hér síðan“ Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Sjáðu markið sem skaut Arsenal áfram í úrslitaleikinn Uppgjörið: Fram - Þróttur 0-3 | Þróttur áfram á sigurbraut en Fram ennþá án stiga Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Vildi fara heim: Seldur aftur til Þróttar eftir aðeins fimm mánuði í FH Mögnuð tilþrif Stefáns á báðum endum og efsta deild markmiðið Lífið leikur við Lindu sem lofaði að svara á sænsku næst Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Segja að Alfreð og félagar ættu að ráða Solskjær Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Segist hafa skipt um hótel til að spara Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Fylkir kláraði Vestra í seinni hálfleik Titillinn að renna úr greipum Elíasar? Lið Tómasar vann gífurlega mikilvægan sigur Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Barcelona getur tryggt sér titilinn gegn Real Madrid Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Reiddist og felldi son Robinho Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjá meira