Fundu líkamsleifar í garði Goodfellas-mafíósa 19. júní 2013 22:06
Bandaríska alríkislögreglan í samstarfi við lögregluna í New York fundu í vikunni líkamsleifar heima hjá mafíósanum Jimmy „the gent“ Burke, sem lést árið 1996 í fangelsi. Sá varð heimsfrægur eftir að stórleikarinn Robert De Niro túlkaði hann í kvikmyndinni Goodfellas sem er byggð á sannsögulegum atburðum. New York Post greinir frá því að lögreglan hafi fundið líkamsleifar í garðinum og grunur leikur á að leifarnar tengist uppgjöri vegna rúmlega 30 ára gamals ráns á Kennedy flugvellinum. Ránið er í daglegu tali kallað Lufthansa-ránið, en Jimmy er grunaður um að hafa skipulagt það, þó engin játning liggi fyrir hvað það varðar. Ræningjarnir höfðu 6 milljónir dollara upp úr krafsinu. Til gamans má geta að sex milljónir dollara eru 740 milljónir króna á núvirði. Hús Jimmys er í eigu dætra mafíósans en þær leigja það út. Rannsókn lögreglunnar beinist einnig að kjallara hússins. Kvikmyndin Goodfellas er byggð á ævisögu glæpamannsins Henry Hill sem leikstjórinn Martin Scorsese gerði ódauðlega árið 1990. Henry gaf sig fram við alríkislögregluna árið 1980 og vitnaði gegn Lucchese-mafíunni og kom þannig félögum sínum á bak við lás og slá - þar á meðal Jimmy. Hann hóf svo nýtt líf í vitnavernd á vegum bandaríska ríkisins. Réttarmeinafræðingar eiga eftir að skoða líkamsleifarnar úr garði mafíósans og er lögreglan þögul sem gröfin varðandi smáatriði rannsóknarinnar. Hér fyrir ofan má sjá sýnishorn úr kvikmyndinni.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Sjá meira