Biðst afsökunar á ofbeldi ÞJ skrifar 4. júní 2013 12:39 Tveir hafa látist og hundruð særst í mótmælaöldunni sem gengið hefur yfir Tyrkland síðustu daga. Mynd/AP
Bulent Arinc, aðstoðarforsætisráðherra Tyrklands, hefur beðið þá mótmælendur afsökunar sem meiddust í aðgerðum lögreglu gegn friðsömum mótmælum gegn niðurrifi Gezi-lystigarðsins á föstudaginn. Hörð viðbrögð yfirvalda kveiktu mikið mótmælabál sem ekki sér enn fyrir endann á, en þúsundir hafa verið teknir höndum í óeirðum síðustu daga. Arinc sagði á blaðamannafundi í morgun að upprunalegu mótmælin í Gezi hafi verið réttmæt og í samræmi við lög og baust til þess að hitta talsmenn mótmælenda að máli. Hann taldi þó enga ástæðu til þess að biðja þá afsökunar sem gegnið hafi um götur, „eyðilagt opinberar eigur og reynt að hamla frelsi almennings.“ Alls hafa um 3.300 manns verið handteknir frá því að mótmælaaldan hófst í Tyrklandi fyrir helgi og fleiri er 1.300 hafa særst. Þetta segja mannréttindasamtök í landinu, en þau segja þó erfitt að henda reiður á nákvæmum upplýsingum um stöðuna. Tveir ungir menn hafa látið lífið í átökunum, annar lést af skotsárum í nótt, en óvíst er hver var þar að verki, og hinn lést eftir að bifreið var ekið inn í hóp mótmælenda á sunnudag. Tugþúsundir borgara hafa mótmælt stjórnarháttum Receps Erdogan forsætisráðherra síðustu fjóra daga. Hann hefur verið sakaður um alræðistilburði, en þvertekur sjálfur fyrir allt slíkt. Áður en Erdogan hélt í opinbera heimsókn til Marokkó í gær blés hann á kröfur um að hann segði af sér og sagði rósturnar runnar undan rifjum stjórnarandstöðunnar. Arinc hitti Abdullah Gul, forseta landsins, í morgun en Gul hefur að mestu verið jákvæður í garð mótmælanna. Fastlega er búist við því að Gul og Erdogan, sem hefur stýrt landinu í áratug, muni takast á í forsetakosningum næsta ár. Ekki hafa enn borist fréttir af meiriháttar róstum í Tyrklandi dag, en mikill viðbúnaður er utan við skrifstofur forsætisráðherra.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Sjá meira