Meðlimur Navy SEALs í kynleiðréttingu ÞJ skrifar 4. júní 2013 14:39 Chris Beck stríddi um árabil við kynáttunarvanda, meðal annars á meðan hann gegndi herþjónustu, en tók svo þá ákvörðun að fara í kynleiðréttingaraðgerð. Hún heitir nú Kristin Beck og gaf nýlega út bókina "Warrior Princess“ þar sem hún gerir upp lífshlaup sitt.
Kristin Beck á að baki feril sem engin önnur kona getur státað af. Hún var um tveggja áratuga skeið meðlimur í sérsveit bandaríska sjóhersins, Navy SEALs. Kristin gekk þá undir nafninu Chris Beck en hún gekkst undir kynleiðréttingaraðgerð árið 2011, eftir að hún hætti herþjónustu. Kristin sendi nýlega frá sér bókina Warrior Princess, þar sem hún greinir frá lífshlaupi sínu, en á árum sínum í hernum fór hún meðal annars þrettán sinnum í ferðir, meðal annars til Bosníu, Íraks og Afganistan þar sem hún safnaði meðal annars skeggi til að dulbúa sig sem Pastúna. Hún var meðal annars sæmd purpurahjarta og bronsstjörnu fyrir afrek sín. Á meðan ferlinum stóð glímdi Chris við kynáttunarvanda við einstakar aðstæður, en heima sátu eiginkona hans og tvö börn. Hann ákvað síðan að láta slag standa og kom út úr skápnum sem transkona árið 2011 og hóf í framhaldinu kynleiðréttingarferlið. Hún sagðist í viðtali vona að þessar fréttir kæmu ekki illa við þá sem höfðu þjónað með henni á ferlinum, en það virðist öðru nær og viðbrögðin úr þeirri átt eru að mestu jákvæð. Þessi opinberun Beck varpar ljósi á misrétti sem transfólk býr við, en jafnvel þótt bann hersins við samkynhneigðum hafi verið afnumið nýlega er transfólki enn meinað að gegna herþjónustu. Vonast hún til þess að nú muni opnast fyrir almenna umræðu um stöðu transfólks og breyting verði til batnaðar í kjölfarið.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Fleiri fréttir Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sjá meira