Erlent

Opinber rannsókn á stigagjöf Azera í Júróvisjón

Jakob Bjarnar skrifar
Azerar fengu 12 stig frá Rússum sem fengu hins vegar ekkert til baka. Þetta vilja menn nú skoða nánar.
Azerar fengu 12 stig frá Rússum sem fengu hins vegar ekkert til baka. Þetta vilja menn nú skoða nánar.

Forseti Azerbaijan, Ilham Aliyev, hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á því hvernig það megi vera að land hans gaf Rússlandi ekki eitt einasta stig í Eurovision-sönglagakeppninni.

Þeir sem hringdu inn stig, sem og dómnefnd Azerbaijan, eru að sögn yfirvalda mjög ánæð með framlag Rússa og leikur grunur á um að mistök hafi verið gerð við atkvæðagreiðsluna eða jafnvel að um svindl hafi verið að ræða. Rússar gáfu Azerum 12 stig í keppninni en Azerbaijan urðu í 2. sæti á eftir Dönum. Hin rússneska Dina Garipova hafnaði hins vegar í fimmta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×