Erlent

Brú hrundi í Seattle

Fjöldi bíla fór í vatnið þegar brúin hrundi.
Fjöldi bíla fór í vatnið þegar brúin hrundi.

Mildi var að enginn fórst þegar brú á þjóðvegi 5 norðvestur af Seattle hrundi í gær.

Þrír eru á sjúkrahúsi eftir slysið en við það fóru fjölmargir bílar í fljótið. Björgunarsveitir og lögregla leita í og við vatnsfallið en ekki er talið að neinn sé í vatninu. Um er að ræða allstóra brú, fjögurra akreina sem liggur yfir Skagit á, 60 mílum norður af Sagit sýslu í Seattle.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×