Breskir feministar vilja að verslunarrekendur hætti að selja „karlatímarit“ Jóhannes Stefánsson skrifar 27. maí 2013 23:23 Franskir feministar mótmæla klámi. Mynd tengist efni fréttar ekki beint Mynd/ AFP
Breskir feministar hafa hótað þarlendum verslunareigendum málsóknum ef þeir hætta ekki að selja tímarit sem sýna naktar eða hálfnaktar konur. Þrýstihópar og lögfræðingar segja að birting tímaritanna eða krafa um að starfsfólk verslana þurfi að afgreiða þau feli í sér kynferðislega áreitni og mismunun. Þá segja þeir að verslanir brjóti í bága við jafnréttislög frá árinu 2010. Samtök breskra verslunareigenda (The British Retailers Consortium) segja verslanir ekki selja neitt ólöglegt. Jafnréttissamtökin UK Feminista og Object hafa tekið höndum saman með 11 lögfræðingum og komið af stað átakinu Burt með karlablöðin. Samtökin rituðu opið bréf sem birtist í Guardian á mánudaginn fyrir viku. „Verslanir í stórum verslunargötum eru að brjóta gegn starfsfólki sínu og í sumum tilfellum viðskiptavinum líka með því að selja varning sem kann að brjóta gegn jafnréttislöggjöf," segir í bréfinu. „Birting karlatímarita og klámblaða í hefðbundnum verslunum getur leitt til þess að starfsfólk, og stundum viðskiptavinir, sjái klámmyndir gegn vilja sínum." Í bréfinu frá samtökunum segir einnig af dæmum þar sem starfsmenn hafa kært vinnuveitendur sína eftir að hafa séð klámfengt efni í starfi sínu og haft betur. Í breskri löggjöf er kynferðisleg áreitni skilgreind sem óumbeðin háttsemi í orðum eða án orða eða líkamlegt athæfi af kynferðislegum toga sem leiðir til ógnandi, niðurlægjandi eða móðgandi aðstæðna. Formaður UK Feminista segir karlablöðin ýta undir kynjafordóma og hegðun þar sem litið er á konur sem kynferðislega hluti. Hún segir klámmyndir valda „alvöru skaða." Ítarlega er fjallað um málið á vef BBC.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira