Forseti Tékklands hrasar í beinni útsendingu, sagður ölvaður Jóhannes Stefánsson skrifar 14. maí 2013 11:33
Milos Zeman, forseti Tékklands, var viðstaddur opinbera athöfn í Prag kastala þar sem hann virtist vera búinn að fá sér í tána. Forsetinn var heldur valtur hvort heldur sem hann stóð eða gekk. Fjölmiðlar í Tékklandi hafa gert að því skóna að forsetinn hafi verið hífaður, en slík ályktun er ekki galin af myndskeiði frá athöfninni að dæma. Skrifstofa forsetans hefur neitað þessum ásökunum og haldið því fram að forsetinn hafi verið sýktur af einhverskonar veiru. Athöfnin átti að vera hefðbundin og felast í því að forsetinn og tveir aðrir embættismenn myndu skoða krúnudjásnin á virðingarfullan hátt. Í myndskeiðinu af athöfninni virðist forsetinn fjarlægur og óviss. Tékkneska blaðið Livové Noviny heldur því fram að forsetinn hafi hrasað um snúru og næstum því dottið í stiga en náð að bjarga sér með því að grípa í stólbak. Þá hafa myndir birst á netinu sem sýna forsetann í einhverskonar annarlegu ástandi, en athugasemdir við myndirnar gefa í skyn að forsetinn hafi verið drukkinn. Ekki eru liðnir nema tveir mánuðir frá því að Zeman tók við embætti forseta Tékklands. Nánar um málið á vefsíðu Washington Post.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Vilhjálmur verður bæjarstjóri Innlent Fleiri fréttir Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Sjá meira