Erlent

Skotmaður í New Orleans handtekinn

Jakob Bjarnar skrifar
Akein Scott er talinn sekur um skothríð í New Orleans á mæðradag.
Akein Scott er talinn sekur um skothríð í New Orleans á mæðradag.

Sá sem grunaður er um skotárás á skrúðgöngu í New Orleans á mæðradaginn, hefur nú verið handtekinn.

19 særðust í árásinni, þar á meðal tvö börn og er mildi að ekki fór verr. Mikil reiði ríkir í New Orleans vegna málsins. Atburðurinn náðist á öryggismyndavél og sést þar ungur maður á hvítum bol hlaupa af vettvangi. Menn þekktu þar hinn 19 ára gamla Akein Scott og hefur hann nú komið í leitirnar. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu í tengslum við ólöglegan vopnaburð og eiturlyf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×