Erlent

Íhuga álagningu kynjaskatts

Jóhannes Stefánsson skrifar
Jafnréttisnefndin telur réttlætismál að skattleggja eftir kyni
Jafnréttisnefndin telur réttlætismál að skattleggja eftir kyni Mynd/ Getty

Bæjaryfirvöld í Umeå í Svíþjóð velta nú fyrir sér hugmyndum um að leggja 7% hærri skatt á karlmenn heldur en konur. Jafnréttisnefnd á vegum bæjarins hefur lagt hugmyndina fram og hefur hana nú til skoðunar.

Nefndin segir að skatturinn muni gera Umeå að „bæjarfélagi þar sem konur og karlar hafa tækifæri til að móta sitt eigið líf og samfélag á jöfnum grundvell, með jafn mikil völd og jöfn tækifæri til að lifa fjárhagslega sjálfstæðu lífi."

Segir óréttlátt að konur séu oftar frá vinnu en karlar vegna barneigna

Nefndin segir mikið hafa áunnist í jafnréttismálum á seinustu árum en of mikið vanti upp á. Þess vegna leggur nefndin til að vegna þess að karlar fái jafnan um 7% hærri laun en konur af óþekktum ástæðum verði lagður á nýr skattur á karlmenn sem nemur þessum mun. Hún segir fyrirkomulagið muna „fá okkur til að endurskoða hugmyndir okkar og sjá hvernig hlutirnir í raun eru, en ekki hvernig við höldum að þeir séu."

Þá tínir nefndin til ýmis önnur rök til réttlætingar álagningunni og segir konur oftar vera frá vinnu vegna barneigna, sem leiði til þess að þær séu verr fjárhagslega staddar heldur en sumir karlmenn. Nefndin segir tímabært að tala um og berjast gegn slíku óréttlæti.

Ef af álagningunni verður segir nefndin að bærinn muni vera „sá fremsti í Svíþjóð í því að tryggja kynjunum vald til að ráða lífi sínu og samfélagi á jöfnum forsendum."

Sjá nánar á vef Västerbottens-Kuriren.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×