Erlent

Fyrsta fermingin í 30 ár hjá dönsku konungsfjölskyldunni

Nikolai prins ásamt fjölskyldu sinni.
Nikolai prins ásamt fjölskyldu sinni.

Í dag var prins Nikolai, sonur Jóakims prins, fermdur í Fredensborg Slotskirke. Þetta er fyrsta fermingin hjá dönsku konungsfjölskyldunni í 30 ár.

Í frétt um málið í dönskum fjölmiðlum kemur fram að það var einmitt faðir Nikolai, Jóakim prins, sem var sá síðasti sem var fermdur hjá konungsfjölskyldunni eða í júní árið 1982.

Meðal gesta í fermingunni voru móðir Nikolai, Alexandra greifaynja og sambýlismaður hennar Martin Jörgensen. Þar að auki voru konungshjónin, Margrét Þórhildur Danadrottning og Henrik prins, viðstödd ásamt Edward prins frá Englandi og konu hans Sophie.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×