Dauðvona stúlka fékk að upplifa drauminn 18. apríl 2013 21:15 Kayleigh ásamt "brúðgumanum“ í brúðkaupinu á þriðjudaginn.
Kayleigh Duff, tuttugu og þriggja ára breska stúlka, fékk þær skelfilegu fréttir í febrúar að arfgengur sjúkdómur hefði þróast yfir í ólæknandi krabbamein í lifur. Faðir hennar lést úr sjúkdómnum þrjátíu og sjö ára að aldri árið 1998. Stúlkan hóf lyfjameðferð í mars síðastliðnum og í henni skrifaði hún niður nokkra hluti sem hún vildi gera áður hún myndi deyja. Á listanum var brúðkaup en hana hafði alltaf dreymt um að giftast. En þrátt fyrir að eiga engan kærasta reddaði besta vinkona hennar því á nokkrum dögum og fór brúðkaupið fram á þriðjudaginn. Vinkonan hafði samband við myndarlega fyrirsætu sem brá sér í hlutverk brúðgumans. Brúðkaupið var hið allra glæsilegasta og komu vinir og fjölskylda saman í kastala í borginni Kent. Brúðurin kom í Jagúar í athöfnina og drukkið var kampavín og borðuð var brúðkaupsterta. Þá voru einnig teknar myndir af „hjónunum“ með fjölskyldum og vinum. „Þetta var frekar vandræðalegt í fyrstu vegna þess að þetta voru augljóslega mjög undarlegar aðstæður. Ég gat ekki hætt að hlæja. Ég átti ekki von á þessu, þetta var algjört brjálæði,“ segir hún í samtali við breska blaðið Telegraph. „Þetta var æðislegt og það má segja að draumur minn hafi ræst. Brúðarkjóllinn var æðislegur og kastalinn og veislan sömuleiðis.“ Og mamma hennar, Beverly Cox, var stolt af dóttur sinni. „Hún var svo falleg. Hana hefur alltaf langað að giftast og klæða sig í fallegan brúðarkjól. Þegar þú sérð hana með myndarlegum ungum manni sér við hlið gleymir þú hvað sé í raun og veru í gangi. Þetta var alveg eins og þetta væri alvöru brúðkaup. Það skiptir okkur miklu máli að fá myndir af þessari fallegu stund - stund sem hana hefur alltaf dreymt um.“ Og brúðkaupið var ekki það eina sem var á listanum hjá henni. Því hana langar einnig að sjá vaxmyndasafnið í London og Lególand í Danmörku. „Ég tek bara einn dag í einu,“ segir hún að lokum.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Dönsk kona ákærð fyrir að verða börnunum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Sjá meira