Englendingar skoruðu átta mörk í San Marínó Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2013 21:50 Þetta var létt hjá enska landsliðinu í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Englendingar áttu eins og allir bjuggust við ekki miklum vandræðum í San Marínó í kvöld og tryggðu sér sannfærandi 8-0 sigur í leik liðanna í undankeppni HM 2004. Fimm af mörkum enska liðsins komu í fyrri hálfleiknum. Englendingar eru áfram í öðru sæti riðilsins nú tveimur stigum á eftir toppliði Svartfellinga. Markatala enska liðsins er nú 20-2. Jermain Defoe skoraði tvö mörk fyrir enska landsliðið í leiknum en Wayne Rooney náði líka að skora í sjötta landsleiknum í röð. San Marínó liðið hjálpaði enska liðinu í gang með því að skora sjálfsmark á 12. mínútu eftir fyrirgjöf frá Leighton Baines. Alex Oxlade-Chamberlain bætti við öðru marki á 28. mínútu eftir samspil við Wayne Rooney og lagði svo upp mark fyrir Jermain Defoe sjö mínútum síðar. Ashley Young skoraði fjórða markið á 39. mínútu og Frank Lampard kom enska liðinu í 5-0 þremur mínútum fyrir hálfeik þegar hann skoraði eftir sendingu frá Leighton Baines. Wayne Rooney skoraði sjötta markið á 54. mínútu með skoti beint úr aukaspyrnu og varamaður hans, Daniel Sturridge, bætti við sjöunda markinu á 70. mínútu þegar hann skallaði inn fyrirgjöf Ashley Young. Jermain Defoe skoraði síðan sitt annað mark á 77. mínútu eftir sendingu frá liðsfélaga sínum hjá Tottenham, Kyle Walker.Defoe fékk síðan dauðafæri undir lokin til að gulltryggja þrennuna en fleiri urðu mörkin ekki.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Fótbolti Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega líta í kringum mig“ Körfubolti Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Fótbolti „Svo lengi sem það er ekki jákvæð og góð umfjöllun um okkur erum við sáttir“ Körfubolti „Ánægður að spila ekki betur en þetta en vinna samt“ Körfubolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Fleiri fréttir Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum Sjá meira