Fótbolti

Bebeto sagði af sér eftir tvo mánuði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bebeto.
Bebeto. Mynd/AFP
Bebeto, fyrrum stjarna heimsmeistaraliðs Brasilíumanna frá 1994 og núverandi yfirmaður yngri flokka starfsins hjá brasilíska knattspyrnusambandinu, entist ekki lengi í starfinu.

Hinn 49 ára gamli Bebeto, sem lék með Flamengo, Vasco da Gama og Deportivo La Coruna á sínum ferli, sagði af sér eftir aðeins tvo mánuði því hann segist ekki hafa nægan tíma til að sinna starfinu nægilega vel.

Bebeto er einnig í þriggja manna skipulagsnefnd vegna Heimsmeistarakeppninnar í Brasilíu sem fer þar fram sumarið 2014.

Bebeto tók við yfirmannsstöðu unglingastarfsins í lok janúar eftir að 20 ára landslið Brasilíu vann aðeins einn af fjórum leikjum í Suður-Ameríkukeppninni.

Bebeto entist heldur ekki lengi í eina þjálfarastarfi sínu þegar hann tók við America-liðinu árið 2000. Þá var hann hættur eftir aðeins átta leiki.

Bebeto er líklega þekktastur fyrir vöggufagnið sitt á HM í Bandaríkjunum 1994.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×