Fótbolti

Þær bandarísku fóru létt með Kína

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bandaríska liðið fagnar sigri í Portúgal.
Bandaríska liðið fagnar sigri í Portúgal. Nordic Photos / Getty Images
Bandaríkin er enn með fullt hús stiga á Algarve-mótinu í Portúgal eftir sannfærandi 5-0 sigur á Kína í dag.

Liðin eru með Íslandi í riðli en Bandaríkin hafði betur gegn stelpunum okkar á miðvikudaginn með þremur mörkum gegn engu.

Sydney Leroux, Ali Krieger, Megan Rapinoe, Christen Press og Whitney Engen skoruðu mörk bandaríska liðsins í dag.

Ísland mætir Svíþjóð klukkan 18.00 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×