Kolbeinn átti ekki að spila í gærkvöldi en skoraði tvö Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2013 13:45
Kolbeinn Sigþórsson skoraði tvö mörk á fimmtán mínútum í fyrsta leik sínum með Ajax í fimm mánuði þegar liðið vann 4-0 bikarsigur á Vitesse í gærkvöldi. Frank de Boer, þjálfari Ajax, ætlaði aldrei að nota hann í leiknum og Kolbeinn átti ekki að spila fyrsta leik sinn eftir meiðslin fyrr en á sunnudaginn. „Ég kom bara inn í liðið af því að Eyong Enoh datt út," sagði Kolbeinn í viðtali við Voetball International. Kamerúnmaðurinn Eyong Enoh var farinn til London til að ganga frá félagsskiptum sínum í Fulham og því kom Kolbeinn óvænt inn í hópinn. „Ég var alveg klár og bjóst við að fá að spila en ég vissi ekki bara í hve langan tíma," sagði Kolbeinn sem kom inn á 75. mínútu í stöðunni 2-0 fyrir Ajax. „Það var frábær tilfinning að skora tvö mörk og strákarnir tóku mér mjög vel," sagði Kolbeinn. Hann skoraði fyrsta markið sitt þegar hann tók frákast eftir vítaklúður félaga síns Lasse Schöne. „Auðvitað vildi ég fá að taka vítið," sagði Kolbeinn sem fiskaði vítið sjálfur. Íslenski landsliðsframherjinn skoraði seinna markið sitt með laglegum skalla. Kolbeinn sagði líka við VI að hann fyndi ekki lengur fyrir neinum óþægindum í öxlinni sem eru mjög góðar fréttir. Það er hægt að sjá svipmyndir frá leiknum hér fyrir neðan.Mynd/Nordic Photos/Getty
Fótbolti Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Telur starf Guardiola í hættu: „Hélt ég myndi aldrei á minni lífsleið segja þetta“ Óttast að Grealish verði lengi frá Feginn Frank fékk sér tvö stór rauðvínsglös Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Tvenna Jesus, óvænt töp, veisla í Madríd og langþráður sigur Lærir inn á nýtt umhverfi: „Ég mun gera mörg mistök“ Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Real Madrid skoraði sex mörk í Meistaradeildinni Gabriel Jesus stjarna Arsenal í enn einum Meistaradeildarsigrinum City fékk skell í Noregi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn KSÍ staðfestir leik gegn heimilislausa HM-liðinu Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Ísland spilar við gestgjafa HM og Haítí Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim Sjá meira