Leicester: Staðfest að beinagrindin er af Ríkharði III 4. febrúar 2013 10:54
Forráðamenn háskólans í Leicester staðfestu nú fyrir stundu að beinagrindin sem fannst í bænum síðasta haust er af Ríkharði III, síðasta konungi Plantagenet ættarinnar í Englandi. Beinagrindin fannst undir bílastæðum á vegum bæjarstjórnarinnar í Leicester. Þar stóð áður klaustur sem eyðilagt var árið 1530. Búið er að grafa upp grunn þess og kapellu. Breskir fornleifafræðingar voru strax þess fullvissir að þeir hefðu fundið beinagrind Ríkharðs III Englandskonungs. Vitað var að Ríkharður III var grafinn við þetta klaustur með lítilli viðhöfn strax eftir orrustuna við Bosworth. Þar að auki er beinagrindin með hryggskekkju og klofna höfuðkúpu eftir axarhögg sem passar við sögulegar heimildir. Beinin voru send í DNA rannsókn og hún sýnir svo ekki verður um villst að fornleifafræðingarnir höfðu rétt fyrir sér. Ríkharður III féll í orrustunni við Bosworth árið 1485 og var hann síðasti konungur Plantagenet ættarinnar á Englandi og ríkti aðeins í tvö ár. William Shakespeare gerði Ríkharð III ódauðlegan í einu leikrita sinna sem ber sama nafn og konungurinn. Með fyrrgreindri orrustu lauk Rósastríðinu svokallaða og valdaskeið Tudor ættarinnar hófst í Englandi.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Sjá meira