Erlent

Leicester: Staðfest að beinagrindin er af Ríkharði III

Forráðamenn háskólans í Leicester staðfestu nú fyrir stundu að beinagrindin sem fannst í bænum síðasta haust er af Ríkharði III, síðasta konungi Plantagenet ættarinnar í Englandi.

Beinagrindin fannst undir bílastæðum á vegum bæjarstjórnarinnar í Leicester. Þar stóð áður klaustur sem eyðilagt var árið 1530. Búið er að grafa upp grunn þess og kapellu.

Breskir fornleifafræðingar voru strax þess fullvissir að þeir hefðu fundið beinagrind Ríkharðs III Englandskonungs. Vitað var að Ríkharður III var grafinn við þetta klaustur með lítilli viðhöfn strax eftir orrustuna við Bosworth. Þar að auki er beinagrindin með hryggskekkju og klofna höfuðkúpu eftir axarhögg sem passar við sögulegar heimildir.

Beinin voru send í DNA rannsókn og hún sýnir svo ekki verður um villst að fornleifafræðingarnir höfðu rétt fyrir sér.

Ríkharður III féll í orrustunni við Bosworth árið 1485 og var hann síðasti konungur Plantagenet ættarinnar á Englandi og ríkti aðeins í tvö ár. William Shakespeare gerði Ríkharð III ódauðlegan í einu leikrita sinna sem ber sama nafn og konungurinn.

Með fyrrgreindri orrustu lauk Rósastríðinu svokallaða og valdaskeið Tudor ættarinnar hófst í Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×