Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Rússland 0-2 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. febrúar 2013 18:27 Mynd/AFP
Sókndjörf uppstilling Lars Lagerbäck landsliðsþjálfara borgaði sig ekki í arfaslökum vináttulandsleik gegn Rússlandi á Spáni í kvöld. Rússar komust yfir í lok fyrri hálfleiks eftir að hafa spilað sig laglega í gegnum íslensku vörnina. Roman Shirokov batt endahnút á þá sókn með marki. Snemma í síðari hálfleik skoraði svo varamaðurinn Oleg Shatov mark, aftur eftir slappan varnarleik íslenska liðsins. Þeim tókst ekki að hreinsa boltann frá marki eftir stungusendingu og Shatov skoraði með föstu skoti í vítateignum. Ísland fékk fá færi í leiknum en það besta fékk líklega Eiður Smári Guðjohnsen. Hann hitti þó boltann illa úr ágætu færi. Íslendingar hittu reyndar aldrei markrammann í kvöld. Lagerbäck var með þá Eið Smára og Gylfa Þór á köntunum en í fremstu víglínu voru Kolbeinn Sigþórsson og Alfreð Finnbogason. Sóknarlína íslenka landsliðsins hefur sjaldan litið jafn vel út á pappírnum margfræga en því miður skilaði hún litlu af sér í kvöld. Rússneska landsliðið, sem hefur unnið alla leiki sína í undankeppni HM 2014 til þessa - og haldið hreinu þar að auki, var afar yfirvegað og vel skipulagt í öllum sínum aðgerðum í kvöld. Rússarnir biðu eftir mistökum hjá íslenska liðinu og náðu í tvígang að refsa fyrir slík mistök með marki. Varnarleikur Íslands var á löngum köflur ágætur en leit þó afar klaufalega út í nokkur skipti, þar á meðal í báðum mörkum rússneska liðsins. Því skal þó haldið til haga að Rússarnir sköpuðu sér ekki mýgrút almennilegra marktækifæra í kvöld - þó svo að þau hafi verið fleiri en hjá íslenska liðinu. Birkir Bjarnason átti fínan leik á miðjunni og sýndi enn og aftur að hann getur gegnt nánast hvaða hlutverki sem er í íslenska liðinu. Flestir aðrir náðu sér ekki nógu vel á strik og eiga vonandi meira inni fyrir komandi landsliðsverkefni.Kolbeinn: Vonbrigði að spila ekki betur Blaðamaður Vísis fann sig knúinn til að slá á létta strengi þegar hann heyrði hljóðið í Kolbeini Sigþórssyni eftir leik í kvöld. Kolbeinn var nefnilega fyrirliði íslenska landsliðsins í 2-0 tapinu gegn Rússlandi í kvöld en hann bar fyrirliðabandið í fjarveru Arons Einars Gunnarssonar. „Hvað segir Kolbeinn kafteinn?" spurði blaðamaður. Kolbeinn hló kurteisislega á móti og sagðist svo hafa verið stoltur af því að hafa fengið að leiða íslenska liðið út á völlinn í kvöld. „Það var mikill heiður," bætti hann við. „Það hefði auðvitað verið skemmtilegra að vinna leikinn. Þetta var ekki nógu gott hjá okkur í dag." „Það eru þó einhverjir jákvæðir punktar sem við getum tekið með okkur. Til dæmis gerðum við fá mistök í vörn í fyrri hálfleik og gáfum heilt yfir fá færi á okkur." „En Rússarnir voru skynsamir og biðu eftir því að við gerðum mistök. Þeir voru mjög yfirvegaðir," sagði hann. Kolbeinn játar því að það hafi verið vonbrigði að fá ekki meira úr sóknarleiknum, sérstaklega miðað við liðsuppstillinguna. „Það var erfitt að fá boltann í lappirnar og þeir náðu mjög vel að loka á okkar spil. Það reyndist því erfitt að skapa eitthvvað af viti." „Við hefðum viljað skapa fleiri færi, þó svo að fengum einhverja sénsa í leiknum. En það vantaði upp á síðustu sendinguna eða skotið. Sem betur fer var þetta æfingaleikur en við verðum að gera betur ef við ætlum að vinna einhverja leiki á þessu ári."Emil: Alltaf sama sagan „Það er alltaf sama sagan hjá okkur. Við gerum okkur of oft seka um klaufaleg mistök," sagði miðjumaðurinn Emil Hallfreðsson eftir leik Íslands og Rússlands í kvöld. Rússarnir unnu leikinn, 2-0, með öguðum leik og fáum en beittum sóknaraðgerðum. Íslenska liðið náði ekki að skapa sér mörg færi. „Bæði mörkin sem við fengum á okkur voru hálf klaufaleg. Í stöðunni 1-0 fékk Eiður reyndar færi til að jafna leikinn en það gekk ekki." „Það má samt ekki gleyma því að við vorum að spila gegn mjög sterku liði sem er með fullt hús stiga eftir fjóra leiki í undankeppninni og ekki enn fengið á sig mark." „Þeir voru mjög skipulagðir og voru svo fljótir að vinna boltann til baka þegar þeir töpuðu honum. Þeir voru bara betri en við í dag. Við hefðum samt mátt halda boltanum betur og skapa okkur fleiri betri sóknir." Emil segir að leikmenn hefðu allir lagt sitt af mörkum. „Viljinn til að gera vel er til staðar. Nú munum við skoða þennan leik og reyna að bæta það sem fór úrskeðis í dag. Vonandi náum við að pússa okkur betur saman fyrir leikinn gegn Slóvenum í mars."Lagerbäck: Munum spila við lakari lið en Rússland Landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck telur að það hafi vel þess virði að prófa að tefla fram jafn sókndjörfu liði og hann gerði gegn Rússlandi í kvöld. Leikurinn tapaðist þó, 2-0. „Það eru alltaf vonbrigði að tapa en ég er samt ánægður með mína leikmenn að mörgu leyti. Þetta var góð liðsframmistaða gegn einu af tíu bestu landsliðum heims," sagði Lagerbäck við Vísi í kvöld. „Við ræddum það sérstaklega fyrir leik að halda boltanum og byggja upp sóknir. Við vorum hins vegar mjög fljótir að missa boltann og það olli mér mestum vonbrigðum í kvöld." „Við vissum að Rússarnir myndu pressa mikið á okkur þegar við vorum með boltann en það þýðir samt ekki að sparka alltaf boltanum frá sér. Það þarf að finna rétta jafnvægið í þessum efnum." Lagerbäck stillti upp sókndjörfu liði í kvöld og segist ánægður með útkomuna. „Mér fannst þeir standa sig vel. Þetta voru sókndjarfari vængmenn en við höfum áður teflt fram og ég held að þetta sé uppstilling sem verði hægt að nota í framtíðinni. Sem betur fer eigum við eftir að spila við lið sem eru ekki jafn góð og rússneska liðið." „Þetta var próf og það er mögulegt að nota þessa uppstillingu aftur. Maður vill alltaf vera með sína bestu leikmenn á vellinum en stundum þarf að fórna því til að fá betra jafnvægi í liðið." „Næst á dagskrá er að leikgreina þennan leik og skoða hvað við getum nýtt okkur í leiknum gegn Slóveníu."
Fótbolti Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Skýrsla Henrys: Nú er hún gamla Grýla dauð Handbolti Fleiri fréttir Feginn Frank fékk sér tvö stór rauðvínsglös Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Tvenna Jesus, óvænt töp, veisla í Madríd og langþráður sigur Lærir inn á nýtt umhverfi: „Ég mun gera mörg mistök“ Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Real Madrid skoraði sex mörk í Meistaradeildinni Gabriel Jesus stjarna Arsenal í enn einum Meistaradeildarsigrinum City fékk skell í Noregi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn KSÍ staðfestir leik gegn heimilislausa HM-liðinu Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Ísland spilar við gestgjafa HM og Haítí Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Sjá meira