Lagerbäck: Munum spila við lakari lið en Rússland Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. febrúar 2013 22:58 Nordic Photos / AFP
Landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck telur að það hafi vel þess virði að prófa að tefla fram jafn sókndjörfu liði og hann gerði gegn Rússlandi í kvöld. Leikurinn tapaðist þó, 2-0. „Það eru alltaf vonbrigði að tapa en ég er samt ánægður með mína leikmenn að mörgu leyti. Þetta var góð liðsframmistaða gegn einu af tíu bestu landsliðum heims," sagði Lagerbäck við Vísi í kvöld. „Við ræddum það sérstaklega fyrir leik að halda boltanum og byggja upp sóknir. Við vorum hins vegar mjög fljótir að missa boltann og það olli mér mestum vonbrigðum." „Við vissum að Rússarnir myndu pressa mikið á okkur þegar við vorum með boltann en það þýðir samt ekki að sparka alltaf boltanum frá sér. Það þarf að finna rétta jafnvægið í þessum efnum." Lagerbäck stillti upp sókndjörfu liði í kvöld og segist ánægður með útkomuna. „Mér fannst þeir standa sig vel. Þetta voru sókndjarfari vængmenn en við höfum áður teflt fram og ég held að þetta sé uppstilling sem verði hægt að nota í framtíðinni. Sem betur fer eigum við eftir að spila við lið sem eru ekki jafn góð og rússneska liðið." „Þetta var próf og það er mögulegt að nota þessa uppstillingu aftur. Maður vill alltaf vera með sína bestu leikmenn á vellinum en stundum þarf að fórna því til að fá betra jafnvægi í liðið." „Næst á dagskrá er að leikgreina þennan leik og skoða hvað við getum nýtt okkur í leiknum gegn Slóveníu."
Fótbolti Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Norsku treyjurnar uppseldar Sadio Mané hættur í landsliðinu en vill vera í kringum liðið áfram Sjá meira