Neyðarfundur vegna hrossakjötsins 9. febrúar 2013 12:49
Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa boðað til neyðarfundar með matvælaframleiðendum og forsvarsmönnum stórmarkaða í dag vegna hrossakjötshneykslisins svokallaða sem hefur vakið sterk viðbrögð meðal almennings í Bretlandi. Á fundinum verða fyrirhugaðar rannsóknir á matvælum sem gætu innihaldið hrossakjöt ræddar. Ákveðið hefur verið að kanna hvort að hrossakjöt leynist í mat sem grunnskólabörnum í Bretlandi og sjúklingum á breskum sjúkrahúsum er boðinn, en yfirvöld þar í landi óttast að svo sé. Þá verður einnig ráðist í innihaldsprófanir á vörum í smásölu. Þetta var ákveðið í kjölfar þess að niðurstöður rannsókna á nautalasagne frá matvælaframleiðandanum Findus sýndu fram á að ellefu tegundir af átján innihéldu hrossakjöt. Fyrirtækið hafði vitneskju um innihaldið í rúma viku áður en niðurstöðurnar birtust almenningi en það aðhafðist ekkert í málinu. Þá fannst um miðjan síðasta mánuð hrossakjöt í hamborgurum sem seldir voru í nokkrum af stærstu verslunarkeðjum Bretlands, þar á meðal Tesco, Iceland og Aldi en forsvarsmenn þeirrar síðastnefndu höfðu vitneskju um innihaldið. Umhverfisráðherra Bretlands, segir þetta vera algjörlega óásættanlegt og er hann harðákveðinn í að komast til botns í málinu, hvort að um algjöra vanhæfni framleiðenda sé að ræða eða alvarlegt og glæpsamlegt samsæri. Svo virðist sem málið einskorðist ekki við Bretland því ákveðið hefur verið að ráðast í rannsóknir á vörum í smásölu víðar í Evrópu vegna gruns um að þær innihaldi hrossakjöt.
Mest lesið Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Sjá meira