Keypti Katar HM 2022? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. janúar 2013 09:40 Blatter tilkynnir í desember árið 2010 að Katar verði gestgjafi HM 2022. Nordic Photos / Getty Images
Franska blaðið France Football segist hafa sannanir sem sýni að fulltrúar Katar hafi keypt atkvæði í kosningunni um HM 2022 á sínum tíma. France Football er eitt virtasta knattspyrnurit heims en liðið stendur að hinni árlegri kosningu um Gullboltann, sem leikmaður ársins fær, ásamt Alþjóðaknattspyrnusambandinu, FIFA. En nú veltir blaðið því upp hvort að æðstu ráðamenn innan FIFA séu svo spilltir að þeir hafi sumir hverjir selt Katar atkvæði sín fyrir háar fjárhæðir. France Football framkvæmdi sína eigin rannsókn á atkvæðagreiðslunni sem átti sér stað árið 2010 - tólf árum áður en keppnin í Katar fer fram. Bandaríkin, Suður-Kórea, Japan og Ástralía vildu einnig fá keppnina en þurftu að láta í minni pokann. Nú heldur blaðið því fram að þeir Issa Hayatou og Jacques Anouma hafi selt atkvæði sín fyrir eina og hálfa milljón dollara (194 milljónir kr.) hvor en þeir eru báðir frá afríska knattspyrnusambandinu. Katararnir munu einnig hafa eytt 1,25 milljónum (161 milljón kr.) árið 2010 til að tryggja sér fjögur afrísk atkvæði úr framkvæmdarstjórn FIFA. Blaðið heldur því einnig fram að Nicolas Sarkozy, þá forseti Frakklands, hafi farið á fram það við landa sinn, Michel Platini (forseta UEFA), að styðja boð Katars af pólitískum ástæðum. Fullyrt er að þeir Sarkozy og Platini hafi hitt Tamim Bin Hamed Al Thani, sjeik í Katar, að máli og farið fram á að franskur fótbolti fengi eitthvað í staðinn fyrir sinn stuðning. Ári síðar keypti fjárfestingafélag í Katar 70 prósenta hlut í Paris Saint-Germain sem telst í dag eitt ríkasta knattspyrnufélag heims. Enn sem komið er hafa engar sannanir borist fyrir þessum fullyrðingum.
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjá meira