Tilræðið sagt sviðsett Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. janúar 2013 09:48 Nordicphotos/AFP
Talið var að ótrúleg heppni hefði orðið til þess að ekki hljóp skot úr byssu manns sem komst upp að hlið stjórnmálamanns á stjórnmálafundi í Búlgaríu á laugardaginn. Nú er annað hljóð komið í strokkinn. Nú reyna Búlgarar að komast til botns í árásinni þar sem ekki liggur ljóst fyrir hvaða ástæðu tilræðismaðurinn hafði til þess að bana stjórnmálamanninum. Guardian fjallar um málið á vefsíðu sinni. Hinn 25 ára gamli Oktai Enimehmedov var færður í vörslu lögreglu eftir að hafa miðað byssu á höfuð Ahmed Dogan, flokksformanns Frelsisflokksins í Búlgaríu. Flokkurinn er í stjórnarandstöðu í Búlgaríu og sækir stuðning sinn aðallega til múslima og Tyrkja í landinu.Dogan grípur um byssu Enimehmedov.Nordicphotos/AFPLögreglan hefur greint frá því að byssan hafi verið gasbyssa sem var hlaðin piparúða. Ekki hafi því verið mögulegt fyrir Enimehmedov að bana Dogan. Tvær tilgátur virðast vinsælastar í Búlgaríu um hver tilgangur Enimehmedov með uppákomunni hafi verið. Hinn 25 ára gamli Tyrki og nemi í arkitektúr, sem hefur komið við sögu lögreglu sökum þjófnaðar og eiturlyfja, skildi eftir miða til mömmu sinnar á heimili sínu áður en hann hélt á stjórnmálafundinn. Þar skrifaði hann að tilgangur sinn væri ekki að ráða Dogan af dögum. Hann vildi aðeins sýna fram á að hann væri ekki ósnertanlegur.Lífverðir Dogan gengu vasklega til verks svo ekki sé meira sagt.Nordicphotos/AFPHin tilgátan er sú að Frelsisflokkurinn hafi sjálfur sviðsett uppákomuna. Þennan sama daga lét Dogan af embætti sem flokksformaður og telja margir að það hafi styrkt stöðu hans að ljúka leik sem fórnarlamb. Þó telja margir að Dogan hafi alls ekki sagt skilið við stjórnmálinn og muni stjórna flokki sínum áfram úr fjarlægð. Enimehmedov á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisvist verði hann fundinn sekur um tilraun til morðs. Búlgarar hafa haft nóg að velta sér upp úr um helgina. Það vekur nefnilega ekki síður athygli að Metin, bróðir Enimehmedov, varð þjóðþekktur árið 2007. Þá bar hann sigur úr býtum í raunveruleikastjórnvarpsþættinum „Dance with me".
Tengdar fréttir Tilræðismaðurinn nafngreindur - notaði líklega gasbyssu Búið er að nafngreina tilræðismanninn sem miðaði byssu á höfuð búlgarska stjórnmannsins Ahmed Dogan, en eins og kunnugt er hljóp ekki skot úr byssu mannsins, og því slapp Dogan með skrekkinn. 20. janúar 2013 10:45 Ótrúlegt tilræði - byssan brást á sviðinu Búlgarski stjórnmálamaðurinn Ahmed Dogan er líklega einn sá heppnasti þessa vikuna, en maður sem hugðist myrða hann á sviði, þar sem Dogan hélt ræðu, mistókst, eingöngu vegna þess að byssan sem hann beindi að höfði Dogan brást. 19. janúar 2013 17:18 Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira
Tilræðismaðurinn nafngreindur - notaði líklega gasbyssu Búið er að nafngreina tilræðismanninn sem miðaði byssu á höfuð búlgarska stjórnmannsins Ahmed Dogan, en eins og kunnugt er hljóp ekki skot úr byssu mannsins, og því slapp Dogan með skrekkinn. 20. janúar 2013 10:45
Ótrúlegt tilræði - byssan brást á sviðinu Búlgarski stjórnmálamaðurinn Ahmed Dogan er líklega einn sá heppnasti þessa vikuna, en maður sem hugðist myrða hann á sviði, þar sem Dogan hélt ræðu, mistókst, eingöngu vegna þess að byssan sem hann beindi að höfði Dogan brást. 19. janúar 2013 17:18