Skrifuðu á kynfæri sofandi stúlku eftir að þeir misnotuðu hana Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 16. apríl 2013 13:28 Sheila Pott við hlið ljósmyndar af dóttur sinni. Mynd/AP
Móðir Audrie Pott, fimmtán ára stúlkunnar sem svipti sig lífi í fyrra í kjölfar kynferðisárásar, hélt blaðamannafund ásamt lögmanni sínum í Kaliforníufylki Bandaríkjanna í gær og tjáði sig opinberlega um atburðinn í fyrsta skipti. Árásin var gerð í veislu í heimaborg Pott, Santa Clara, en hún hafði sofnað áfengissvefni í svefnherbergi húsráðanda. Þegar hún vaknaði höfðu árásarmennirnir skrifað á ýmsa líkamshluta hennar, þar á meðal kynfæri hennar. „Þeir skrifuðu „Xxxxx var hér“ á fætur hennar,“ sagði lögfræðingur Pott-fjölskyldunnar, en hann notaði ekki raunveruleg nöfn hinna grunuðu á blaðamannafundinum.“ Næstu daga eftir árásina rann upp fyrir Pott hvað hafði gerst, og í skólanum varð hún vitni að því að hópur samnemenda hennar stóð og skoðaði niðurlægjandi myndir af henni á farsíma. „Ég hef orðspor vegna kvölds sem ég man ekki eftir og allur skólinn veit af því,“ skrifaði Pott til vinar síns í Facebook-skilaboðum. Rúmri viku eftir árásina bað Pott móður sína að sækja sig í skólann, og sagði henni að hún gæti ekki meira. Hún vildi þó ekki segja henni hvað væri að. Sama dag hengdi hún sig á heimili þeirra. Þrír sextán ára drengir voru handteknir á dögunum vegna málsins, og hafa þeir verið ákærðir fyrir árásina og fyrir að hafa barnaníðefni í fórum sínum, en þeir tóku ljósmyndir af árásinni. Krefjast lögmenn fjölskyldunnar þess að réttað verði yfir þeim sem fullorðnum. Lög Kaliforníufylkis gera greinarmun á því hvort þolandi veitir mótspyrnu eða ekki og er hámarksrefsing fyrir brotin því mun lægri en ef Pott hefði verið vakandi. Þessu vill móðir hennar breyta, og vinnur að því ásamt lögmanni sínum að fá í gegn ný lög, „Audrie-lögin“, nefnd í höfuðið á dótturinni.
Tengdar fréttir Handteknir fyrir kynferðisárás eftir að þolandi framdi sjálfsvíg Þrír piltar grunaðir um kynferðisárás á fimmtán ára stúlku í Kaliforníu, en hún framdi sjálfsvíg þegar ljósmyndir af árásinni fóru í umferð. Málinu svipar til máls Rehtaeh Parsons frá Halifax. 12. apríl 2013 22:55 Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira
Handteknir fyrir kynferðisárás eftir að þolandi framdi sjálfsvíg Þrír piltar grunaðir um kynferðisárás á fimmtán ára stúlku í Kaliforníu, en hún framdi sjálfsvíg þegar ljósmyndir af árásinni fóru í umferð. Málinu svipar til máls Rehtaeh Parsons frá Halifax. 12. apríl 2013 22:55