Sýrland: Líklegt að efnavopnum hafi verið beitt Þorgils Jónsson skrifar 4. júní 2013 13:15 "Ef Bandaríkin vita ekki hverjir eru að beita efnavopnum gætu það allt eins verið geimverur á fljúgandi diskum,“ stendur á þessu mótmælaspjaldi sem ungur piltur hélt á lofti í mótmælum í borginni Sarmada í gær. Mynd/AP
Ýmislegt bendir til þess að efnavopn hafi verið notuð í takmörkuðu magni í fjórum atvikum í borgarastyrjöldinni í Sýrlandi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu Sameinuðu þjóðanna, en frekari rannsókna er þörf til að greina hvaða efni voru notuð og hver af hinum stríðandi aðilum beitti þeim. Ásakanir um grimmdarverk og stríðsglæpi ganga milli stjórnarhers Assads forseta og uppreisnarhópa, en um 70.000 manns eru taldir hafa farist í stríðinu, sem staðið hefur í rúm tvö ár. Uppreisnarhópar segja að stjórnarherinn hafi notað efnavopn í fjögur skipti, en í skýrslunni segir að ekki sé hægt að staðfesta slíkt endanlega nema með nánari rannsókn og biðlar til stjórnvalda í Damaskus að hleypa rannsóknarteymi inn í landið, en stjórnvöld taka fyrir allt slíkt. Í skýrslunni, sem var unnin frá janúar fram í miðjan síðasta mánuð, eru bæði stjórnarherinn og uppreisnarhópar sakaðir um stríðsglæpi. stjórnarherinn er sakaður um nauðganir, morð, nauðaflutninga og mannshvörf, en uppreisnarhóparnir eru sakaðir um aftökur án dóms og laga, pyntingar, gíslatökur og gripdeildir. Brot uppreisnarhópa eru hins vegar ekki talin eins víðtæk né gróf og brot stjórnarhersins og tengdra vígahópa. Í skýrslunni er einnig fjallað um breytta afstöðu Evrópusambandsins, sem ákvað á dögunum að framlengja ekki vopnasölubann til stríðandi aðila í Sýrlandi. Er látið að því liggja að sala vopna til uppreisnarhópa gæti orðið til þess að auka hættuna á grimmdarverkum og frekara mannfalli í hópi almennra borgara. „Stríðsglæpir og glæpir gegn mannkyninu eru daglegt brauð í Sýrlandi þar sem sláandi frásagnir fórnarlamba eru sem brennt í samvisku okkar,“ segir í skýrslunni. „Aukið aðgengi að vopnum í Sýrlandi mun hafa í för með sér enn frekari þjáningar og dauða."
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira