Krefjast afsökunarbeiðni frá Bandaríkjunum 5. júlí 2013 10:13 Forsetar Úrúgvaí, Argentínu og Bólivíu, þau Jose Mujica, Cristina Fernandez og Evo Morales, hittust í Bólivíu á fimmtudag ásamt leiðtogum fleiri Suður-Ameríkuríkja til að fagna heimkomu Morales. Mynd/AP
Spænsk stjórnvöld segjast hafa fengið upplýsingar um að uppljóstrarinn Edward Snowden væri um boð í flugvél Bólivíuforseta, sem neyddist til að lenda í Austurríki fyrr í vikunni. Leiðtogar flestra ríkja Suður-Ameríku hittust í Bólivíu í gær og kröfðust þess að Bandaríkin bæðust afsökunar á atvikinu. Evo Morales, forseti Bólivíu, hótar því að loka bandaríska sendiráðinu. „Þeir sögðu okkur að upplýsingarnar væru ótvíræðar, hann væri um borð,” segir Jose Manuel Garcia-Margallo, utanríkisráðherra Spánar. Hann vildi ekki segja hverjir „þeir” væru, sem höfðu fullyrt þetta, en segir að önnur Evrópuríki, sem meinuðu flugvél Bólivíuforseta að fljúga um lofthelgi sína á þriðjudag, hafi byggt ákvörðun sína á þessum sömu heimildum. Morales ítrekaði í gær fullyrðingar sínar um að það hafi verið bandarísk stjórnvöld sem beittu Evrópuríki þrýstingi til að tryggja að flugvélin gæti ekki flogið beint frá Moskvu til Bólivíu, eins og til stóð. Hann hafði því neyðst til að lenda í Austurríki og bíða þar klukkustundum saman á meðan gengið var úr skugga um að Snowden væri ekki um borð. Leiðtogar Suður-Ameríkuríkja eru Bandaríkjunum reiðir og segja þetta augljóst brot gegn fullveldisrétti Bólivíu. Auk þess sé þetta kjaftshögg fyrir alla álfuna. „Sameinuð munum við sigrast á bandarísku heimsveldastefnunni,” sagði Morales á leiðtogafundinum, sem haldinn var í Cochabamba í Bólivíu í gær. „Við þurfum ekki á bandaríska sendiráðinu að halda,” bætti hann svo við. „Við ætlum ekki að sætta okkur við að á 21. öldinni séu sum ríki fyrsta flokks, önnur annars flokks og enn önnur þriðja flokks,” sagði Rafael Correa á leiðtogafundinum.
Mest lesið „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Erlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent Fleiri fréttir Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Sjá meira