Kristjanía gegn kókaíni Jakob Bjarnar skrifar 11. júní 2013 07:35 Kókaín er að kafsigla Kaupmannahöfn. Íbúar í Kristjanínu gangast nú fyrir umfangsmikilli herferð gegn efninu.
Kókaín einkennir næturlíf Kaupmannahafnar og fríríkið Kristjanía hefur ekki farið varhluta af því. Þessi staðreynd hefur orðið til þess að íbúar, hasssölumenn og veitingastaðaeigendur á staðnum hafa tekið höndum saman og vilja nú koma í veg fyrir neyslu efnisins. Birgitte Wester, sem hefur búið í Kristjaníu frá 1979, hannaði herferð af þessu tilefni. Hún segir marga telja kókaínið góða viðbót við áfengisdrykkju, menn geti þá drukkið lengur en þeir viti ekki hversu skaðlegt kókaín er.Kókaínmenn gerðir brottrækir Það kann að koma einhverjum á óvart að Kristjanía, sem þekkt er fyrir frjálslyndi, ekki síst gagnvart vímugjöfum, skuli leggja til atlögu gegn kókaíni. Þetta gerðu íbúar fríríkisins einmitt árið 1979, en þá lögðust íbúar á eitt og úthýstu harðari efnum á borð við heróín og amfetamín. Nú er sama uppi á teningnum gagnvart kókaíninu. Herferðin er hafin undir slagorðinu að kókaín sé eitur og sá sem þess neytir má gera ráð fyrir því að vera gerður útlægur úr Kristjaníu allt frá þremur mánuðum upp í eilífðarútskúfun. Kristjaníubúar hafa fest kaup á ýmsum búnaði, til að mynda eiturlyfjamæli, sambærilegan þeim sem notaður er af lögreglunni, og á útfjólubláu ljósi sem lýsir upp hvítt duft. Hönnuð hafa verið merki sem sett eru á jakka og boli og verður veggspjöldum dreift um allt svæðið. Á næturna mun svo starfa sérstök nátthrafnaherdeild sem vaktar svæðið. Hún mun samanstanda af aktivistum, foreldrum, hasssölumönnum og starfsmönnum á svæðinu.Starf lögreglu að rannsaka - dómstóla að dæma Birgitta segir að allt sé vaðandi í kókaíni í Kaupmannahöfn, pokar um efnið liggi eins og hráviði víðsvegar um svæðið og þess vegna bregðist íbúar Kristjaníu nú við. Verði einhver uppvís að notkun harðra efna verður viðkomandi vísað vinsamlega en afdráttarlaust að útgangshliði. Vagn Greve, prófessor í refsirétti, bendir á að aðgerðirnar gætu brotið í bága við hegningarlög. ,,Hinn almenni borgari má ekki ganga um og leika lögreglumann," segir hann og leggur áherslu á að það megi ekki hafa í hótunum við einstakling sem á að reka af svæðinu. Aðstoðaryfirlögregluþjónninn Poul Kjeldsen segir lögregluna eins og er styðja þessa herferð Kristjaníu gegn hörðum efnum. Hann segist þó vilja minna á það sé hlutverk lögreglunnar og dómstóla að rannsaka og dæma. „Síðan gæti ég vel hugsað mér samskonar liðveislu gegn ódulinni sölu kannabisefna," bætir hann við að lokum.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira