Hasssölumenn vilja borga opinber gjöld Friðrik Indriðason skrifar 31. maí 2013 21:29 Hasssölumenn við iðju sína í Kristjaníu í Kaupmannahöfn. Nordiphotos/AFP
Hasssalar í Pusher Street í Kristjaníu í Kaupmannahöfn vilja borga skatta og gjöld af verslun sinni eins og hverjir aðrir kaupmenn í borginni. Málið hefur vakið töluverða athygli í dönskum fjölmiðlum í kjölfar fréttar í blaðinu Politiken um þessar óskir hasssölumannanna. Í fréttinni var haft eftir einum þeirra að um 99 prósent félaga sinna vilji að verslun þeirra verði gerð lögleg „svo við getum farið með afrakstur dagsins í næsta bankabox eins og aðrir kaupmenn,“ eins og hann orðar það. Politiken ræddi við Morten Bödskov dómsmálaráðherra Danmerkur í framhaldinu af framangreindri frétt. Viðbrögð hans voru að segja þvert nei við þessum óskum hasssölumannanna í Pusher Street. Bödskov segir það af og frá að dönsk yfirvöld muni semja um eitt eða annað við menn sem tilheyra skipulögðum glæpasamtökum. Þar er hann að vísa til þess að Hells Angels stjórnar að mestu markaðinum í Kristjaníu. „Við ætlum ekki að gefast upp fyrir skipulögðum glæpasamtökum sem standa að baki þessum fíkniefnaviðskiptum og öðrum glæpum,“ segir Bödskov. „Lögleiðing á hassi myndi aðeins auka neyslu þess og fjölga fíklum og þannig skaða ungmenni okkar enn meir en orðið er.“ Frank Jensen yfirborgarstjóri Kaupmannahafnar er jákvæður gagnvart því að lögleiða hass í borginni og hefur talað fyrir slíku undanfarna mánuði. Hann er hins vegar algerlega sammála dómsmálaráðherranum um að ekki komi til greina að semja um málið við hasssölumennina í Kristjaníu. Hugmyndir Frank Jensen ganga út á að hass verði selt í sérstökum verslunum undir ströngu eftirliti hins opinbera. Hann horfir einkum til þess að draga úr glæpum sem tengjast hasssölunni en blóðugir götubardagar hafa geisað frá áramótum milli glæpagengja sem berjast um bestu sölustaðina í borginni þ.e. fyrir utan Kristjaníu. Jensen horfir einnig til þess að hægt væri að auka tekjur borgarinnar verulega ef hass væri gert löglegt.Stærsti hassmarkaður í Evrópu Pusher Street er einn stærsti hassmarkaður Evrópu, en þar eru að jafnaði til staðar á bilinu 25 til 30 sölubásar á hverjum degi. Talið er að veltan á hassmarkaðinum í Kaupmannahöfn liggi á bilinu 750 til 1.000 milljóna danskra króna, allt að rúmlega 20 milljarðar íslenskra króna, á hverju ári. Rúmlega helmingur þeirrar veltu er af sölu á Pusher Street.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Sjá meira