ESB þrýstir á Úkraínu Guðsteinn Bjarnason skrifar 18. nóvember 2013 11:45 Stuðningsfólk Júlíu Tímosjenkó á mótmælafundi nýverið. Mynd/EPA
Úkraínustjórn virðist nú standa frammi fyrir því að þurfa að velja á milli Evrópusambandsins og Rússlands. Undir lok mánaðarins heldur Evrópusambandið leiðtogafund í Vilníu, höfuðborg Litháens, þar sem til stendur að undirrita samning við Úkraínu um stjórnmálatengsl og fríverslun. Þar strandar hins vegar á því, hvort Úkraínustjórn samþykkir fyrst að leysa úr haldi Júlíu Tímosjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra sem nú afplánar sjö ára fangelsisdóm vegna spillingarmála. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur komist að þeirri niðurstöðu að fangelsun hennar sé ólögmæt, og því krefst Evrópusambandið þess að meðal fjölmargra umbótamála, sem Úkraína þarf að leiða í lög áður en samningarnir verða undirritaðir, verði samþykkt lög sem tryggja að Tímósjenkó verði látin laus. Úkraínuþing hafði frest þangað til í dag til þess að setja þessi lög, en ætlar nú að ræða þau á morgun. Viktor Janúkovitsj, forseti Úkraínu, hefur lýst því vilja til þess að tengjast Evrópusambandinu, en hikar við að láta Tímosjenkó lausa. Evrópusambandið hefur ákveðið að hinkra og sjá til hvort Úkraína klári þetta mál fyrir leiðtogafundinn í Litháen, sem haldinn verður dagana 28. og 29. nóvember. Úkraína stendur hins vegar frammi fyrir því að verði samningarnir við Evrópu að veruleika muni Rússar að öllum líkindum snúa bakinu við Úkraínu. Rússnesk stjórnvöld eru afar andsnúin því að Úkraína halli sér að Evrópusambandinu, og hafa hótað harkalegum aðgerðum sem myndu bitna á efnahagslífi Úkraínu. Meðal annars hafa Rúsar hótað því að flytja verksmiðjur frá Úkraínu til Rússlands.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Sjá meira