Konur og börn féllu í loftárás NATÓ 13. febrúar 2013 09:51 Ungur drengur sem slasaðist í loftárásinni í nótt. MYND/AFP
Yfirvöld í Afganistan lýstu því yfir í nótt að hátt í tíu óbreyttir borgarar hefðu fallið í loftárás Atlantshafsbandalagsins í austurhluta Afganistan, flestir konur og börn. Talsmaður NATÓ sagði í dag að rannsókn á málinu stæði yfir. Að minnsta kosti þrír Talibanar féllu í árásinni en skæruliðarnir eru sagðir hafa tengsl við hryðjuverkasamtökin al-Qaeda. Þá særðust fjögur börn til viðbótar í loftárásinni. Mannfall meðal almennra borgara er afar viðkvæmt mál hjá NATÓ og hefur Hamid Karzai, forseti Afganistan, margsinnis þurft að fordæma aðgerðir Atlantshafsbandalagsins í landinu. Karzai hefur oft á tíðum sagt að hið svokallaða stríð gegn hryðjuverkum eigi ekki að fara fram í afgönskum þorpum. Málið kemur hins vegar upp á allra versta tíma fyrir NATÓ. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, tilkynnti í stefnuræði sinni í gær að Bandaríkin og NATÓ myndu fækka verulega í herliði sínu í Afganistan á næsta ári.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira