Eiður Smári: Getur orðið besta landslið sem Ísland hefur átt Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Ljubljana skrifar 22. mars 2013 21:01 Eiður Smári Guðjohnsen Mynd/Anton
Eiður Smári Guðjohnsen lagði upp sigurmark Íslands gegn Slóveníu í undankeppni HM 2014 í kvöld, eftir að hafa komið inn á sem varamaður. „Ég sagði nú við Lars að við hefðum unnið stærra hefði ég byrjað," sagði Eiður í léttum dúr eftir leikinn. Hann byrjaði að hita upp snemma í síðari hálfleik og til stóð að hann myndi koma fyrr inn á. En jöfnunarmark Gylfa breytti því. „Upphitunin var aðeins lengri en til stóð. En maður verður að hita vel upp enda oft í leikjum eins og þessum að maður getur staðið á öndinni eftir tvær mínútur eftir að maður kemur inn á," sagði Eiður. Hann segir þó að liðið hafi ekki náð sér á strik í fyrri hálfleik. „Við vorum ekki ánægðir með hann af augljósum ástæðum. Mér fannst við reyndar hættulegir þegar við unnum boltann en vorum kannski aðeins of ákafir." „Við héldum ekki boltanum nógu vel og vorum kannski að bíða eftir að eitthvað myndi gerast. En við unnum og það er frábært að fara heim með þrjú stig." Hann segir að jöfnunarmark Gylfa hafi breytt leiknum. „Mér fannst Slóvenar ekki pressa neitt svakalega á okkur eftir það og þá fer maður að trúa því að það sé hægt að ná í öll þrjú stigin." Eiður hefur spilað lengi með landsliðinu og með mörgum leikmönnum í gegnum tíðina. „Ég vil kannski ekki vanmeta aðra leikmenn sem við höfum átt en ég tel að þessi hópur leikmanna sem við eigum nú er jafnasti hópur sem við höfum átt. Við eigum nánast heila kynslóð af hágæða knattspyrnumönnum og er með nokkra menn sem geta gert gæfumuninn," sagði Eiður. „Ég vil ekki segja að þetta sé besta lið sem Ísland hefur átt en þetta getur klárlega orðið það."
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Åge Hareide látinn Fótbolti Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Strasbourg - Breiðablik | Tekst Blikum að tryggja sig áfram? Fótbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Keflavík - Njarðvík 93-83 | Montrétturinn Keflvíkinga Körfubolti ÍR - Valur 82-85 | Baráttusigur í Breiðholti Körfubolti Fleiri fréttir Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Strasbourg - Breiðablik | Tekst Blikum að tryggja sig áfram? Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Fótboltamaður skotinn til bana Spilar áfram með Messi í Miami Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Vålerenga úr leik eftir tap fyrir stöllum Glódísar Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Varði fjögur víti til að tryggja PSG titilinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Fjórir frá hjá Blikum á morgun Benítez lét Sverri byrja og flaug áfram í bikarnum KSÍ missti af meira en milljarði króna City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Sjá meira