Enski boltinn

Villas-Boas: Tottenham-liðið ætti að skammast sín

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, var að sjálfsögðu ekki upplitsdjarfur eftir 6-0 tap á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær en þetta var versta tap liðsins síðan í desember 1996.

Tottenham er nú í níunda sæti deildarinnar og átta stigum á eftir toppliði Arsenal. Gylfi Þór Sigurðsson fékk ekki að koma inn á völlinn fyrr en staðan var orðin 5-0 fyrir Manchester City.

„Við ættum að skammast okkur og koma sterkir til baka eftir svona tap," sagði Andre Villas-Boas eftir leikinn. Tottenham byrjaði með boltann en lenti samt undir eftir aðeins fjórtán sekúndur eftir skelfilegt útspark Hugo Lloris.

„Þetta var mjög erfið byrjun fyrir okkur. Eftir hana var allt sem við lögðum upp með runnið út í sandinn. Það er ekki margt jákvætt frá þessum leik en við áttum ágætan kafla eftir að við fengum fyrsta markið á okkur," sagði Villas-Boas.

„Möguleikinn okkar var í fyrri hálfleiknum því þetta hefði verið allt annar leikur ef við hefðum jafnað í 1-1. Það var mikið sjokk að fá á sig mark eftir fimmtán sekúndur," sagði Andre Villas-Boas.

„Manchester City átti frábæran leik en við vorum lélegir. Ég ber ábyrgð á því að rífa leikmenn upp og það er alltaf stutt í næsta leik," sagði Villas-Boas en næsti leikur Tottenham er í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.

Það er hægt að sjá mörkin úr leiknum hér fyrir ofan.

Mynd/NordicPhotos/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×