Tólf ára tekinn af lífi 20. febrúar 2013 14:08
Myndir sem sýna tólf ára gamlan dreng frá Sri Lanka fyrir og eftir dauða hans hafa litið dagsins ljós. Varað er við myndunum sem fylgja fréttinni. Myndirnar af Balachandran Prabhakaran, syni Velupillai Prabhakaran foringja uppreisnarsveita Tamíl Tígra, voru teknar í maí 2009. Þá hafði ríkisstjórnin á Sri Lanka hrundið uppreisn Tígranna á bak aftur og um leið bundið endi á borgarastyrjöld sem staðið hafði í 26 ár. Fyrri myndirnar tvær, hér að ofan og neðan, sýna drenginn í gæslu yfirvalda þar sem hann situr með teppi yfir axlir sínar og gæðir sér á einhverju matarkyns.Drengurinn fær sér að borða.Á ljósmyndum sem teknar voru nokkrum klukkustundum síðar, á sömu vél að því er Dailymail fullyrðir, sést drengurinn á jörðinni, ber að ofan og með för eftir byssukúlur á brjóstkassa sínum. Sérfræðingar segja að drengurinn hafi verið skotinn af stuttu færi. Myndirnar verða sýndar í heimildarmyndinni No Fire Zone sem frumsýnd verður á Mannréttindakvikmyndahátíð í Genf í næsta mánuði samhliða fundi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Stjórnvöld á Sri Lanka hafa ávallt haldið því fram að hinn tólf ára gamli Balachandran hafi látið lífið í skotbardaga. Callum Macrae, leikstjóri kvikmyndarinnar, segir þá staðhæfingu ekki geta átt við rök að styðjast. „Sú staðreynd að aftakan var fest á filmu og myndirnar geymdar til minningar um sigur í stríðinu gerir þetta enn óþægilegra," segir Macrae við Independent.Lík drengsins eftir meinta aftöku.Líkið af Prabhakaran eldri var sýnt í ríkissjónvarpinu á Sri Lanka í maí 2009 til marks um sigur stjórnvalda gegn uppreisnarhermönnum. Ýmislegt benti til þess að um aftöku hefði verið að ræða þar sem hluta af höfuðkúpu hans vantaði á líkið. Þótti það benda til skots af stuttu færi. Brigadier Wanigasooriy, talsmaður hersins á Sri Lanka, segir ýmist um lygar, hálfsannleik eða orðróm að ræða. Hermenn voru sakaðir um brot á mannréttindum á síðustu dögum styrjaldarinnar. Var talið að kynferðisglæpir, morð og hvers slags misþyrmingar hefðu átt sér stað. „Engin sönnunargögn liggja fyrir sem gefa ástæðu til rannsóknar," segir Wanigasooriy. Ban Ki-Moon, ritari Sameinuðu þjóðanna, birti skýrslu árið 2011 þar sem fram kom að allt að 40 þúsund manns hefðu látist á síðustu mánuðum styrjaldarinnar.Velupillai Prabhakaran, foringi uppreisnarsveita Tamíl Tígra.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira