Erlent

Neyðarfundur í Pakistan vegna drónaárásar

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Hakimullah Mehsud, leiðtogi Talibana í Pakistan, var felldur í drónaárás Bandaríkjamanna.
Hakimullah Mehsud, leiðtogi Talibana í Pakistan, var felldur í drónaárás Bandaríkjamanna.
Forsætisráðherra Pakistans hefur boðað til neyðarfundar í öryggisráði landsins í kjölfar drónaárásar Bandaríkjamanna sem felldi leiðtoga Talibana í landinu, Hakimullah Mehsud á föstudag.

Búist er við hefndaraðgerðum af hálfu Talíbana.  Pakistönsk stjórnvöld saka Bandaríkjastjórn um að brjóta gegn fullveldi landsins en Bandarísk stjórnvöld hafa ekki viljað tjá sig um árásina á annan hátt en þann að benda á að Mehsud hafi verið grunaður um fjölmargar árásir á bandaríska borgara í gegnum árin.

Pakistanar segja að árásin á Mehsud hafi gert út um alla möguleika á  friðarviðræðum við Talíbana en háttsett sendinefnd átti að hitta Mehsud í þessari viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×