Suu Kyi sögð komin á þing 2. apríl 2012 06:30 Fögnuður í Búrma Stuðningsmenn Aung San Suu Kyi eftir að flokkur hennar hafði lýst yfir sigri. Fréttablaðið/AP
Staðfesti herforingjastjórnin í Búrma sigur Aung San Suu Kyi í aukaþingkosningum í Kawhmu, þá tekur hún von bráðar sæti á þingi í fyrsta sinn. Flokkur hennar, Lýðræðisfylkingin, fullyrðir að frambjóðendur flokksins hafi unnið sigur í 40 kjördæmum af þeim 45 sem kosið var í. Lýðræðisfylkingin bauð fram í 44 þeirra. Mikill fögnuður braust út meðal stuðningsmanna flokksins og Suu Kyi víða um land. Yfirlýsing flokksins um sigur í hverju kjördæminu á fætur öðrum var birt á ljósaskilti fyrir utan höfuðstöðvar hans í borginni Rangún. Þúsundir stuðningsmanna flokksins voru saman komnir fyrir utan húsið og tóku strax að hrópa sigri hrósandi: „Við unnum, við unnum!“ Ekki er búist við opinberum niðurstöðum úr atkvæðatalningu fyrr en í dag. Yfirlýsingar Lýðræðisfylkingarinnar eru byggðar á útgönguspám, sem flokkurinn lét gera. Engin óháð samtök hafa getað staðfest þessa niðurstöðu. Suu Kyi, sem er orðin 66 ára, hefur verið höfð í stofufangelsi meira og minna undanfarna tvo áratugi en var látin laus síðla árs 2010, þegar herforingjastjórnin var tekin til við að slaka á valdataumunum. Lýðræðisfylkingin vann yfirburðasigur í þingkosningum árið 1990 en herforingjastjórnin neitaði þá að viðurkenna úrslit þeirra kosninga. Síðan herforinginn Thein Sein tók við forsetaembætti í landinu snemma á síðasta ári hafa nokkrar lýðræðisumbætur orðið. Flestum pólitískum föngum hefur verið sleppt úr haldi og ritskoðun á fjölmiðlum hefur að stórum hluta verið aflétt. Jafnframt hefur einangrun landsins verið rofin. Samskiptin við Vesturlönd hafa batnað og jafnvel Bandaríkin hafa gefið vilyrði um aðstoð, haldi þessi þróun í lýðræðisátt áfram. Lýðræðisfylkingin hefur á hinn bóginn sakað herforingjastjórnina um að hafa staðið að margs konar kosningasvindli í gær. Tugir kæra höfðu borist til yfirkjörstjórnar landsins. Meðal annars eru þar ásakanir um að kjörseðlar hefðu verið vaxbornir, sem gerði kjósendum erfitt fyrir að merkja við frambjóðendur með þeim afleiðingum að kjörseðlarnir geta verið taldir ógildir. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Vonda veðrið færist í borgina og á Suðurland Veður „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Innlent Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Erlent Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Innlent Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Innlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir alvarlegt lestarslys í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Sjá meira