Erlent

"Við verðum að vera viðbúin því versta“

Chris Christie
Chris Christie
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á austurströnd Bandaríkjanna vegna fellibylsins Sandy sem áætlað er að nái landi annað kvöld. Neðanjarðarlestakerfi og almenningssamgöngum í New York verður lokað vegna flóðahættu.

Fellibylurinn hefur kostaði sextíu manns lífið á ferð sinni yfir Karabbíahafið. Hann mun mæta tveimur öflugum vetrarlægðum þegar hann kemur að austurströnd bandaríkjanna annað kvöld og er búist við aftakaveðri með allt að þrjátíu sentimetra rigningu og sextíu sentimetra snjókomu.

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í sex ríkjum, þar á meðal New York og Virginíu og hafa stjórnvöld þessarra ríkja sagt íbúum að gera viðeigandi ráðstafanir og búa sig undir rafmagnsleysi jafnvel í marga daga.

„Ég þekki þetta því ég hef búið hér alla ævi. Allir segja að þetta sé della og ekkert muni gerast,

að veðurstofan hafi alltaf á röngu að standa og við eigum bara að bíða átekta og láta sem ekkert sé. Ekki gera það. Við verðum að vera viðbúin því versta," segir Chris Christie, ríkisstjóri í New Jersey.

Ákveðið hefur verið að loka neðanjarðarlestakerfinu í New York borg og öðrum almenningssamgöngum í kvöld vegna flóðahættu auk þess sem fjölda flugferða hefur verið aflýst en samkvæmt upplýsingum frá Icelandair eru öll flug félagsins til Bandaríkjanna enn á áætlun en fylgst verður náið með stöðunni.

„Þetta er hættulegur stormur en ég held að við munum verða óhult. En ef fellibylurinn

sækir óvænt í sig veðrið eða fari út af þeirri braut sem búist er við að hann fylgi gæti hann valdið miklum skemmdum og þið gætuð verið í hættu," segir Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×