Erlent

Danir orðnir drykkfelldari en Grænlendingar

Danir njóta nú þess vafasama heiðurs að verða orðnir drykkfelldari en Grænlendingar.

Fjallað er um málið í Jyllands Posten en þar segir að nýjar tölur frá grænlensku hagstofunni sýna að Grænlendingar drekka nú að meðaltal 9,8 lítra af hreinum vínanda hver á ári. Drykkja Dana er hinsvegar 11,1 lítri á mann á ári og munar því 1,3 lítrum af hreinum vínanda á drykkju þjóðanna.

Til samanburðar má nefna að Íslendingar drekka að jafnaði rúmlega 7 lítra af vínanda á mann á ári en áfengisneysla er minnst hjá Íslendingum og Norðmönnum af Norðurlandaþjóðunum.

Þessi þróun skýrist af því að Grænlendingar hafa dregið verulega úr áfengisneyslu sinni frá árinu 2000 og virðast forvarnir þar í landi virka vel. Um aldamótin nam drykkja Grænlendinga 13,5 lítrum af hreinum vínanda og hefur því minnkað um nær 4 lítra á síðustu 12 árum.

Fram kemur að bara á síðasta ári minnkaði öldrykkja Grænlendinga um 3,5%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×