Vilja safn og hugsanlega veitingastað í Hegningarhúsið Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar 5. janúar 2012 19:29 "
Sá verður heppinn sem hreppir hnossið," segir varðstjóri Hegningarhússins sem hættir starfsemi þegar nýtt fangelsi á Hólmsheiði verður tekið í gagnið. Hugrún Halldórsdóttir heimsótti þessa sögulegu byggingu í dag og kannaði nokkra framtíðarmöguleika en til greina kemur að selja húsið. Það hafa eflaust margir skoðun á því hvað gera eigi við þessa fangelsisbyggingu á Skólavörðustíg. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, vill til dæmis sjá þar safn sem tengist réttarkerfinu. Guðmundur Einarsson varðstjóri tekur í sama streng og það er ekki skrýtið enda margt áhugavert þarna að sjá, eins og til dæmis gömlu Bæjarþingstofu borgarinnar þar sem Hæstiréttur hafði eitt sinn aðsetur. Og svo nýtur sín þar gamall arkitektúr. "Hurðirnar eru svo lágar að þær fara í hökuna á mér þegar á labba þannig að ég verð orðinn öryrki þegar ég fer á eftirlaun. Þetta er náttúrulega barn síns tíma," segir hann. Ögmundur sér einnig fyrir sér veitingastað í þessu forna húsi en nokkrir áhugsamir veitingamenn hafa nú þegar sýnt húsnæðinu áhuga. "Húsið er vel staðsett og án efa ágætlega fallið til slíkra nota," segir hann. Guðmundur tekur ekki eins vel í þá hugmynd. Hann gæti þó fallist á veitingasölu í garði hússins að sumri til. Svo gætu gestirnir horfið aftur til ársins 1874 og fengið rétt af fyrsta matseðli Hegningarhússins en samkvæmt honum yrði til dæmis uxakjötssúpa á boðstólnum á sunnudögum. Húsið er friðað en samkvæmt húsfriðunarnefnd ættio önnur starfsemi hæglega að geta tekið við af fangelsisrekstrinum. "Sá verður heppinn sem hreppir hnossið" segir Guðmundur. Hann segir jafnframt að ef veggirnir í húsinu gætu talað þá myndu þeir segja margar sögur.Mynd úr greininni í Bændablaðinu.Mynd/Þórdís ClaessenVið þetta er svo að bæta að í Bændablaðinu, sem kom út seint á síðasta ári, er fjallað um matarmarkaði á höfuðborgarsvæðinu og þeirri hugmynd velt upp að gera Hegningarhúsið á Skólavörðustíg 9 að „Matarhöll". Þar gætu gestir keypt ferska íslenska matvöru úr öllum áttum, búvörur, fiskmeti, brauð og annað góðgæti allt árið um kring. Í fangelsisgarðinum, þar sem múrar fengju að víkja, yrði útimarkaður á sumrin og jafnvel jólamarkaður í desember.
Mest lesið Svarar engu um afleiðingar þess að flugmaðurinn komi til skaða Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Erlent Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Innlent Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Innlent Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins Innlent Fleiri fréttir Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent