Á annað hundrað látnir í frosti 3. febrúar 2012 05:00 Emin Hotovic, íbúi í þorpinu Hotani í Bosníu, burðast með 25 kílóa hveitipoka á bakinu heim til sín eftir að hafa þurft að ganga til næsta bæjar eftir nauðþurftum. FréttablaðiÐ/AP
Vetrarhörkurnar í Evrópu síðustu daga hafa kostað hátt á annað hundrað manns lífið. Síðast í gær létust að minnsta kosti tuttugu manns í Úkraínu, níu í Póllandi, átta í Rúmeníu, einn í Serbíu og einn í Tékklandi. Ástandið hefur verið verst í austanverðri álfunni, en hörkurnar hafa einnig verið miklar í Þýskalandi, Frakklandi, Miðjarðarhafslöndum og norðanverðri álfunni. Í þorpum fjallahéraðs í Serbíu hafa að minnsta kosti 11 þúsund manns verið innilokaðir vegna fannfergis, hálku og hríðarveðurs sem staðið hefur dögum saman. Sams konar veðri er spáð þar áfram næstu dagana og var því mikil áhersla lögð á að opna vegi í gær, meðan færi gafst. Í Úkraínu hafa meira en 60 manns látist vegna kuldanna undanfarna viku. Hátt í þúsund manns hafa verið lagðir inn á sjúkrahús vegna ofkælingar og kals. Þá hafa stjórnvöld sett upp upphituð tjöld þar sem heimilislausu fólki er boðið upp á heitan mat og skjól. Í Rúmeníu hafa meira en tuttugu manns látist og þar hefur um 180 skólum verið lokað vegna veðursins. Þá sitja þrjú skip föst í ísnum á Dóná. Í Búlgaríu eru rúmlega þúsund skólar lokaðir. Nokkrir bæir þar eru rafmagnslausir og er unnið dag og nótt að því að koma rafmagni á aftur. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Innlent Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Erlent Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Innlent Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Innlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í Eyjum Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Fleiri fréttir Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Sjá meira