Erlent

Gríðarlegur húsnæðisskortur í New York

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mikð álag er á starfsfólki neyðarskýla í Bandaríkjunum.
Mikð álag er á starfsfólki neyðarskýla í Bandaríkjunum. Mynd/ AFP.
Gríðarlegur húsnæðisskortur blasir við íbúum í norðausturhluta Bandaríkjanna vegna óveðursins sem geysaði þar í síðustu viku. Tugþúsundir manna hafa hvorki rafmagn né hita og búa í húsnæði sem er stórskemmt eftir óveðrið. Andrew Cuomo ríkisstjóri í New York og Michael Bloomberg borgarstjóri sögðu á blaðamannafundi í gær að hætta væri á ferðum nú þegar það færi að kólna í veðri. Þá fyrst kæmi í ljós að mjög mörg hús væru ónýt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×