Árásir hertar á Gasaströnd 16. nóvember 2012 09:30 Þykkan reyk lagði frá Gasaborg eftir að sprengja frá Ísraelsher lenti þar í gær, ein af mörgum. nordicphotos/AFP
Loftárásir Ísraelshers á Gasaströnd höfðu kostað að minnsta kosti 15 manns lífið síðdegis í gær. Forseti Egyptalands fordæmir árásir Ísraela og boðar heimsókn sína til Gasa í dag. Palestínumenn halda áfram að skjóta flugskeytum yfir til Ísraels, meðal ann Ísraelsher herti loftárásir sínar á Gasaströnd í gær og bjó sig undir að fara með herlið sitt yfir landamærin. Palestínumenn hafa svarað með því að halda áfram að skjóta flugskeytum yfir til Ísraels. Árásir Palestínumanna kostuðu að minnsta kosti þrjá Ísraela lífið, en árásir Ísraela höfðu síðdegis í gær kostað að minnsta kosti 15 Palestínumenn lífið. Á annað hundrað manns særðust. Palestínumenn sögðust hafa skotið flugskeytum á Tel Avív, næst stærstu borg landsins. Ísraelar segja þær sprengjur engu tjóni hafa valdið. Ísraelski herinn sagðist síðdegis í gær hafa varpað sprengjum á 250 skotmörk á Gasaströnd frá því árásirnar hófust nærri hálfum öðrum sólarhring fyrr. Jafnframt fullyrðir Ísraelsher að Palestínumenn hafi skotið 274 sprengjuflaugum yfir landamærin til Ísraels. Tekist hafi að skjóta 105 þeirra niður með sprengjuvarnarkerfi sem Bandaríkjamenn aðstoðuðu Ísraelsmenn við að koma upp. Átökin eru þau hörðustu í fjögur ár. Ísraelar segjast vera í fullum rétti til að verja sig gegn sprengjuflaugum frá Gasasvæðinu, sem hafi skipt hundruðum á þessu ári. „Það er mikilvægt að átta sig á einföldu atriði: Það er ekkert siðferðilegt jafnræði með hryðjuverkamönnum á Gasa og Ísraelum,“ sagði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels: „Þeir eru að fremja tvöfalda stríðsglæpi: Þeir skjóta á almenna borgara í Ísrael, og fela sig á bak við almenna palestínska borgara.“ Mohammed Morsi, forseti Egyptalands, fordæmdi í gær árásirnar og boðaði jafnframt heimsókn sína til Gasastrandar í dag. Hann lýsti yfir stuðningi við Palestínumenn á Gasa, en forðaðist þó að hafa hörð orð um Ísraela og sagðist hafa rætt við Barack Obama Bandaríkjaforseta um að hægt væri að „koma á friði og öryggi fyrir alla án hernaðarátaka“. Bandaríkjastjórn fordæmir hins vegar Hamas fyrir að skjóta flaugum á Ísraela. Bandaríkjamenn hafa, eins og Evrópusambandið, litið á Hamas-samtökin sem hryðjuverkasamtök og viðurkenna ekki stjórn þeirra á Gasaströnd.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Sjá meira