New York illa löskuð eftir Sandy 1. nóvember 2012 08:00 Þung umferð yfir Brooklyn-brúna í New York Úr því jarðlestakerfið er í lamasessi og strætisvagnar aðeins að hluta virkir þurfti fólk að fara fótangandi, á hjóli eða á einkabílnum í vinnu. fréttablaðið/AP
Lífið í New York er smám saman að færast í fastar skorður eftir hamfarirnar sem gengu yfir í byrjun vikunnar. Enn eru þó heilu hverfin án rafmagns og almenningssamgöngur úr skorðum. Þeir sem þurftu að yfirgefa heimili sín eru að snúa aftur og kanna skemmdir. Íbúar í New York þurftu margir hverjir að fara óvenjulegar leiðir til að komast í vinnuna í gær – þeir sem komust á annað borð. Lestarsamgöngur liggja niðri, og munu liggja niðri að hluta nokkra daga í viðbót þótt nokkrar lestir fari af stað í dag. Strætisvagnakerfið er að hluta komið í gang, og það er ókeypis í strætó. Einnig hafa leigubílstjórar fengið undanþágu og mega taka fleiri en einn farþega í einu og láta út á mismunandi stöðum. Sumir geta því notfært sér strætisvagna eða leigubíla, aðrir hjóla eða jafnvel ganga langar vegalengdir. Sumir eru svo heppnir að geta unnið heima hjá sér. Nokkur hverfi í miðborginni eru þó enn rafmagnslaus, og þar eru hvorki götuljós né umferðarljós virk. Íbúar þar óttast skemmdarverk og rán, en lögreglan sendi fjölmennt lið á stúfana til að keyra um göturnar og standa á götuhornum. Alls urðu rúmar átta milljónir manna án rafmagns þegar fellibylurinn Sandy skall á síðastliðinn mánudag. Í gær voru enn 6,5 milljónir heimila og fyrirtækja án rafmagns, og allt leit út fyrir að víða kæmist ekkert rafmagn á fyrr en í fyrsta lagi um helgina. Rafmagnsleysið er á mjög stóru svæði, allt frá Wisconsin í vestri til Suður-Karólínu í suðri, en þó engan veginn á öllu svæðinu heldur á köflum innan um svæði þar sem rafmagnið heldur sér. Víða skapaði rafmagnsleysið töluverða hættu, til dæmis í ríkinu New Jersey, þar sem rafmagnið fór af 29 sjúkrahúsum. Miklar skemmdir urðu víða á húsnæði af völdum flóða og ofsaroks. Þeir sem þurftu að yfirgefa heimili sín áður en stormurinn skall á hafa verið að snúa heim og skoða skemmdirnar. „Þetta er sárt eftir að hafa verið hérna í 37 ár,“ hafði fréttastofan AP eftir Barry Prezioso, íbúa í Point Pleasant í New Jersey, einn þeirra sem komu að húsi sínu töluvert skemmdu. „Að sjá heimili sitt eyðilagt svona, það er erfitt. En enginn meiddist og enn er hægt að hafast við á efri hæðinni, þannig að við getum búið uppi og hreinsað þetta út. Ég er viss um að sumir urðu verr úti. Mér finnst ég frekar heppinn.“ Tala þeirra sem létu lífið af völdum hamfaranna var síðdegis í gær komin upp í 59 og var óttast að hún ætti enn eftir að hækka, enda margir illa slasaðir og margra enn saknað.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira