Komið í veg fyrir einkarétt Kína 13. júní 2012 05:00 Í Nuuk á Grænlandi
Grænlenska landsstjórnin mun ásamt Evrópusambandinu, ESB, undirrita í Nuuk í dag yfirlýsingu sem á að tryggja að Kínverjar fái ekki einkarétt á sölu fjölda mikilvægra bergtegunda í landgrunni Grænlands, heldur verði þær boðnar út á frjálsum markaði. Kínversk fyrirtæki geta tekið þátt í vinnslu svokallaðra „sjaldgæfra bergtegunda“ á Grænlandi og sölu þeirra en grænlenska landsstjórnin skuldbindur sig nú til að tryggja að viðskipti með bergtegundirnar verði frjáls, að því er segir á vef danska ríkisútvarpsins. Gert er ráð fyrir að Grænlendingar fái 25 milljóna evra fjárhagsstuðning á komandi árum við vinnslu bergtegundanna vegna samvinnunnar við ESB. Stjórnvöld í Danmörku reyndu fyrr á þessu ári að hafa meiri áhrif á samningana við ESB. Danska stjórnin, sem styðst við greiningu leyniþjónustu hersins, er þeirrar skoðunar að „sjaldgæfar bergtegundir“ hafi svo mikið hernaðarlegt gildi að líta verði svo á að vinnsla þeirra heyri undir utanríkis- og öryggismál sem heyri undir Danmörku. Kína hefur nú yfirráð yfir 95 prósentum af heimsframleiðslunni úr sjaldgæfum bergtegundum sem meðal annars eru notaðar í háþróuð vopnakerfi, farsíma, vindmyllur og ýmsar hátæknivörur. Þess vegna hafa ríkisstjórnir, leyniþjónustur og iðnfyrirtæki á Vesturlöndum lengi reynt að koma í veg fyrir að Kínverjar fái einkarétt yfir bergtegundunum við Grænland sem eru þær mestu utan Kína. Kínverjar hafa áður notað yfirráð sín yfir sjaldgæfum bergtegundum til dæmis til þess að þvinga Japani til að fylgja fyrirmælum sínum. - ibs
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Blóðbankinn á leið í Kringluna Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Fleiri fréttir Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Sjá meira